Fjármálaráðuneyti: Forsíða Moggans skotin niður

Fjármálaráðuneytið hefur sent út tilkynningu vegna rangrar forsíðufréttar Moggans. Davíð Oddsson er ritstjóri Moggans sem í annað sinn á skömmum tíma er með forsíðufrétt sem heldur ekki.

Fjármálaráðuneytið hefur sent út tilkynningu vegna rangrar forsíðufréttar Moggans. Davíð Oddsson er ritstjóri Moggans sem í annað sinn á skömmum tíma er með forsíðufrétt sem heldur ekki.

Mánudagur 23. nóvember 2009 kl 17:37

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Fjármálaráðuneytið hefur sent út yfirlýsingu vegna forsíðufréttar Morgunblaðsins frá 21. nóvember. Þar var umfjöllunarefnið gengistryggt skuldabréf Landsbankans og Landsbanka Íslands hf. upp á 260 milljarða króna. Lýsti blaðið því að afborganir af skuldabréfinu myndu setja þrýsting á krónuna. Ráðuneytið upplýsir nú að samið hafi verið um að engar afborganir yrðu af skuldabréfinu næstu fimm árin og áhrif á krónuna því engin.

Yfirlýsingin er eftirfarandi: ,,Fjármálaráðuneytið telur nauðsynlegt er að leiðrétta atriði sem fram koma í frétt á forsíðu Morgunblaðsins þann 21. nóvember sl. Í fréttinni er fjallað um samninga milli Landsbankans og Landsbanka Íslands hf. um útgáfu nýja bankans á 10 ára gengistryggðu skuldabréfi að fjárhæð 260 ma.kr. til gamla bankans vegna þeirra útlána sem tekin voru yfir.

Í fréttinni er gert ráð fyrir að skuldabréfið verði greitt niður með jöfnum árlegum afborgunum og að afborganirnar muni því strax fela í sér útstreymi gjaldeyris sem gæti sett óþægilegan þrýsting á krónuna. Þetta er rangt.

Vegna þeirra hugsanlegu áhrifa á krónuna sem bent er á, var samið um að skuldabréfið væri afborgunarlaust fyrstu fimm árin, en síðan greitt niður á árunum 2014–2018, þegar gjaldeyrismarkaður verður kominn í eðlilegt horf. Vegna stærðar skuldabréfsins er samið um afborgunarferil þess með tilliti til áætlana um greiðslujöfnuð landsins gagnvart útlöndum á næstu árum. Ekki er því ástæða til að ætla að samningur um uppgjör milli bankanna muni hafa nein óeðlileg áhrif á gengi krónunnar á næstu árum.

Með samningunum má segja að Landsbankinn hafi tryggt sér aðgang að erlendu lánsfé til langs tíma og getur hann því fjármagnað öll útlán til þeirra viðskiptavina sinna sem þurfa á slíku fé að halda í starfsemi sinni. Hér er helst um að ræða útflutningsfyrirtæki og aðra aðila sem hafa tekjur í erlendum myntum".


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 23:32

„Álfur“ hótaði að sprengja upp sveinka

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 23:00

Friðardúfa í vígahug

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 22:30

Tamílum veitt frelsi

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 22:20

Löggan stuðaði ódælan 10 ára dreng

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:50

Kirkju Tiger Woods lokað

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:40

„Osama er ekki hér“

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:31

Ríkasti glæpamaður Bretlands í 13 ára fangelsi

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:30

Hvatningarverðlaun ÖBÍ afhent

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:26

Hermann Hreiðars og félagar án launa í nóvember

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:25

Óttast um öryggi Polanski - færður um fangelsi

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 19:37

Setið um Ásdísi Rán í Búlgaríu

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 18:44

Ellefu ára blind stúlka vill verða söngleikjastjarna

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 18:30

Salt-félög Róberts skulda Glitni 20 milljarða

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 17:00

Hvorki sjónvarp né útvarp á Kópaskeri

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 17:00

Lalli Johns í 2 mánaða fangelsi fyrir innbrot

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:44

Femínistar vara við ábyrgum feðrum

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:42

Dómur þyngdur yfir 61 árs barnaníðingi

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:32

Þungir dómar yfir Papeyjarsmyglurum staðfestir

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:29

Stöð 2 að slátra RÚV - SkjárEinn fær útreið

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 15:47

Sér eftir að hafa komið Tiger og eiginkonu hans saman