ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Fjárdrátturinn í Kaupþingi: Óvíst hvers eðlis hann var

11:43 › 23. nóvember 2009
Ekki liggur fyrir hvers eðlis hinn meinti fjárdráttur Önnu Heiðdal úr Kaupþingi var.

Ekki liggur fyrir hvers eðlis hinn meinti fjárdráttur Önnu Heiðdal úr Kaupþingi var.

Ólíklegt er að fyrrverandi Kaupþingsstarfsmaðurinn Anna Heiðdal, sem kærð hefur verið fyrir fjárdrátt úr bankanum, hafi hagnast persónulega á hinum meinta verknaði. Miklu líklegra er að hún hafi lánað fé og átt í viðskiptum við aðila sem hún tengist, meðal annars fjölskyldumeðlimi sína, án heimildar og í of miklum mæli og þessi viðskipti séu skilgreind sem fjárdráttur samkvæmt lögum.

Anna segist í viðtali við DV í dag hafa haft milligöngu um lánafyrirgreiðslu til fólks í fjölskyldu sinni og að henni hafi verið sagt upp störfum í sumar vegna þessa. Hún kannast hins vegar ekki við að hafa dregið sér fé. Hið meinta brot á að hafa átt sér stað um árabil en Anna hóf störf hjá Kaupþingi árið 2001 og hélt áfram að starfa í KB-banka eftir sameiningu Kaupþings og Búnaðarbankans á vormánuðum 2003. Hún starfaði í eignastýringu bankans. Það var skilanefnd Kaupþings eða slitastjórn hans sem kærði hinn meinta fjárdrátt til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra.

Einn heimildarmaður DV, sem starfaði með Önnu á sínum tíma, segir að honum finnist afar ólíklegt að Anna hafi dregið sér fé úr bankanum með þeim hætti að hún hafi lagt það inn á reikning sinn af reikningum bankans eða viðskiptavina hans og í kjölfarið reynt að breiða yfir verknaðinn. Hann segir að Anna hafi einfaldlega ekki þá menntun eða þann bakgrunn sem til þarf til að skipuleggja slíkan fjárdrátt svo vel sé og að líklegt sé að eftirlitið í bankanum hefði komið auga á slíkt fyrr. Því er afar líklegt að skýringarnar á fjárdrættinum séu flóknari en þær virðast vera samkvæmt orðanna hljóðan.

Fjárdráttur í skilningi laga er miklu víðara og almennara hugtak en svo að það sé eingöngu notað um það þegar einhver einstaklingur beinlínis stelur fjármunum, segir einn af viðmælendum blaðsins. Fjárdrátturinn geti líka verið notaður um það þegar fjármunir eða önnur gæði skipti um hendur á óeðlilegum forsendum, til dæmis ef lán er veitt úr banka án tilhlýðilegra trygginga til einhverra sem tengjast þeim sem veitir lánið, og annað í þeim dúr.

Talið er að fjárdrátturinn nemi tugum til hundruð milljóna króna. Anna segist ekki hafa verið boðuð í yfirheyrslu hjá lögreglunni út af málinu. Það sem vitað er um hinn meinta fjardrátt er því af nokkuð skornum skammti eins og er en það mun væntanlega skýrast betur eftir því sem fram líður hvernig í pottinn er búið, það er segja, hvers eðlis fjárdrátturinn var.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.