Anna Heiðdal, sem er fædd árið 1944 og er því 65 ára gömul í dag, segist aðspurð hafa verið rekin úr Kaupþingi í sumar en ekki vegna hins meinta fjárdráttar heldur vegna þess að hún hafi verið sökuð um að hafa lánað aðilum tengdum sér fé. Anna hefur verið kærð til efnahagsbrotadeildar lögreglunnar vegna hins meinta fjárdráttar. Slitastjórn, eða skilanefnd Kaupþings, kærði Önnu fyrir hinn meinta verknað í sumar.
„Það var ekki út af þessu... Ég sá um að selja ýmis konar pappíra eins og skuldabréf og víxla og annað slíkt. Ég var búin að dunda við þetta síðan 1980... Ég var rekin fyrir að lána peninga og stunda viðskipti við fólk sem var tengt mér, við fjölskylduna mína. Það var það sem yfirlögfræðingurinn [Innskot blaðamanns: Helgi Sigurðsson] sagði mér að væri ekki við hæfi... Það er sagt að það hafi vantað pening í bankann. Þetta kemur út eins og ég hafi verið að ræna banka eða eitthvað,“ segir Anna sem starfað hafði hjá Kaupþingi síðan 2001.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna