Fjárdráttarkæran í Kaupþingi: Anna lýsir yfir sakleysi sínu
Anna Heiðdal, fyrrverandi starfsmaður Kaupþings, segist vera saklaus.
Anna Heiðdal, fyrrverandi starfsmaður Kaupþings sem grunuð er um fjárdrátt úr bankanum, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún segist vera saklaus. Hún segist fullviss að rannsókn málsins muni leiða sakleysi hennar í ljós. Anna hefur verið kærð vegna málsins.
Yfirlýsing Önnu er svohljóðandi: „Vegna fjölmiðlaumræðu þar sem ég er nafngreind, grunuð um fjárdrátt í starfi mínu hjá KB banka, lýsi ég yfir sakleysi mínu. Er ég þess fullviss að rannsókn málsins, sem ég hef ekki haft hugmynd um hingað til, muni leiða það í ljós.“
Athygli vekur að Anna ræðir ekki um ástæðurnar fyrir því af hverju henni var sagt upp störfum hjá Kaupþingi, líkt og hún gerir í viðtali við DV í dag. Þar segir hún að henni hafi verið sagt upp vegna þess að hún hafi lánað fjölskyldumeðlimum sínum fé og átt í viðskiptum við þá fyrir hönd Kaupþings sem þótt hafi óeðlileg. Ýmislegt er því óljóst í málinu en rannsókn efnahagsbrotadeildarinnar á því mun væntanlega leiða hið sanna í ljós.
Mánudagur 23. nóvember 2009 kl 11:43
Fjárdrátturinn í Kaupþingi: Óvíst hvers eðlis hann var
Mánudagur 23. nóvember 2009 kl 09:11
Fjárdráttarkæran í Kaupþingi: Segist hafa lánað ættingjum sínum
Mánudagur 23. nóvember 2009 kl 08:30








