Dauðalisti með nöfnum þeirra starfsmanna deCode sem halda starfinu hjá fyrirtækinu eftir yfirvofandi eigendaskipti lak á netið í síðustu viku. Kári Stefánsson, fráfarandi forstjóri félagsins, kom að því að semja listann.
Listi með nöfnum þeirra starfsmanna deCODE sem halda starfinu hjá fyrirtækinu eftir væntanleg eigendaskipti lak á netið i gegnum bandaríska lögfræðiskrifstofu í síðustu viku. Þeir starfsmenn sem munu missa starf sitt hjá deCODE á næstu mánuðum komust því að því að á internetinu þar sem nöfn þeirra voru ekki á listanum.
Á milli 20 til 30 starfsmenn deCODE af 170 verður sagt upp í kjölfar eigendaskiptanna ef marka má listann. Þetta stríðir gegn því sem kom fram í síðustu viku þegar sagt var frá greiðslustöðvun félagsins og væntanlegum kaupum Saga Investments á deCode á Íslandi. Þá kom fram að enginn starfsmaður myndi missa vinnuna eftir eigendaskiptin.
Meðal þeirra sem komu að því að setja þennan lista saman voru Kári Stefánsson, forstjóri deCODE, og Jakob Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs hjá fyrirtækinu. Listinn er vistaður á léni hjá yahoo.com þar sem rætt er um starfsemi deCODE.
Mikil óánægja ríkir meðal starfsmanna deCODE út af málinu en Sigríður Ella Guðlaugsdóttir, starfsmannastjóri fyrirtækisins, hefur gengist við því að starfsmönnum verði fækkað hjá fyrirtækinu þó svo hún hafi hvorki viljað játa því né neita að reka ætti þá starfsmenn sem ekki eru nefndir á nafn á listanum. Starfsmennirnir munu væntanlega láta af störfum hjá deCODE snemma á næsta ári.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli