ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.0° 2m/s WSW

Dauðalisti deCode: „Áframhaldandi starfsmenn félagsins á Íslandi“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:47 › 23. nóvember 2009
Skjámynd af hluta skjalsins þar sem fram kemur hvaða starfsmenn deCode muni halda vinnunni eftir eigendaskiptin á fyrirtækinu.

Skjámynd af hluta skjalsins þar sem fram kemur hvaða starfsmenn deCode muni halda vinnunni eftir eigendaskiptin á fyrirtækinu.

Listinn með nöfnum þeirra starfsmanna sem halda vinnunni hjá deCODE lak á netið í gegnum bandarísku lögfræðiskrifstofuna sem vinnur að samkomulaginu um kaupin á milli Decode Genetics Inc., móðurfélagsins sem komið er í greiðslustöðvun, og Saga Investments LLC. Starfsmenn Decode fréttu af listanum á fimmtudaginn, tveimur dögum eftir að greint var frá greiðslustöðvun móðurfélagsins í Bandaríkjunum.

Listinn er í PDF-skjali sem ber yfirskriftina: „Áætlun um samkomulag um kaup á eignum á milli Decode Genetics Inc. og Saga Investments LLC“ þar sem fjallað er um nokkur atriði í samningum móðurfélagsins og Saga Investments.

Dauðalistinn með nöfnum þeirra starfsmanna sem halda vinnunni ber aftur yfirskriftina: „Áframhaldandi starfsmenn félagsins á Íslandi. Einstaklingar sem nefndir eru í viðauka A, sem fylgir hér með, sem staðsettir eru Íslandi eru áframhaldandi starfsmenn félagsins á Íslandi.“ Eftir að starfsmenn deCODE sáu listann á fimmtudaginn óskuðu þeir eftir skýringum á málinu frá forsvarsmönnum félagsins og fengu þá þau svör að einungis væri um að ræða uppkast en ekki endanlegan starfsmannalista.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.