Samkvæmt heimildum DV munu þeir Malcolm Walker, sir Tom Hunter og Don McCarthy ætla að koma með nýtt hlutafé inn í eignarhaldsfélagið 1998 sem á Haga. Er talið að þeir muni koma með um sjö til til tíu milljarða króna í nýtt hlutafé. Talið er að nú þegar hafi verið afskrifað um 25 milljarðar króna af um 50 milljarða skuldum 1998.
Bretarnir þrír hafa verið nánir viðskiptafélagar Baugs og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á undanförnum árum. Malcolm Walker er forstjóri Iceland matvælakeðjunnar, sir Tom Hunter var talinn ríkasti maður Skotlands og sá fyrsti sem eignaðist yfir einn milljarð punda og Don McCarthy er stjórnarformaður House of Fraser og skartgripakeðjunnar Aurum. Sir Tom Hunter var einn af stærstu eigendum félagsins Jötunn Holding sem átti stóran hlut í bæði FL Group og Glitni.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka, vildi lítið tjá sig um viðræðurnar við núverandi eigendur 1998. Bankinn hafði gefið Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og aðilum tengdum honum frest þar til í dag til að koma með nýtt hlutafé inn í 1998.
Heimildarmaður DV segir að nú þegar sé búið að afskrifa um helming af skuldum 1998. Það hafi verið gert þegar skuldir félagsins voru færðar yfir í Nýja Kaupþing sem nú heitir Arion banki. Skuldir 1998 námu 30 millljörðum króna í september 2008 samkvæmt lánabók Kaupþings sem lak á vefsíðuna Wikileak. Talið er að sú upphæð nemi nálægt 50 milljörðum króna eftir fall íslensku krónunnar. Talið er að erlendir kröfuhafar hafi því þurft að afskrifa nærri 25 milljörðum króna af skuldum 1998 þegar skuldirnar færðust frá gamla bankanum yfir í Nýja Kaupþing sem nú heitir Arion banki.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“