ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Allir starfsmenn Símans kallaðir á fund

Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@dv.is
14:43 › 23. nóvember 2009
Starfsmenn Símans flykkjast nú á starfsmannafund í Smárabíói.

Starfsmenn Símans flykkjast nú á starfsmannafund í Smárabíói. Sigtryggur Ari Jóhannsson

Öllum starfsmönnum Símans hefur verið hóað saman á fund í Smárabíói sem hefst klukkan þrjú núna á eftir. Samkvæmt heimildum DV verður áætlun fyrirtækisins fyrir árið 2010 kynnt.

Þá munu einhverjar nýjungar verða kynntar og auglýsingar til að kynna þessar nýjungar verða sýndar í fjölmiðlum annað kvöld.

Heimildir DV herma að engar uppsagnir verði kynntar á fundinum og hefur fundurinn ekki vakið upp óvissu meðal starfsmanna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.