81% aukning á tilkynntum kynferðisbrotum gegn börnum
Skömm og sektarkennd eru fylgifiskar kynferðisofbeldis. Þeir valda því að þolendur þora oft ekki að segja frá og tilkynna brotin. Opnari umræða síðustu ár virðist vera að breyta því. Myndin er uppstillt. Photos.com.
Alls voru 368 kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu í fyrra sem eru átján prósent fleiri brot en voru að meðaltali á árunum 2003 til 2007. Gríðarleg fjölgun varð á tilkynntum kynferðisbrotum gegn börnum yngri en fimmtán ára. Á síðasta ári voru þau 102 sem er 81 prósent aukning miðað við meðaltal áranna 2003 til 2007. Árið 2007 voru brotin 79, 55 árið 2006 og 57 árið 2005. Þetta kemur fram í skýrslu um afbrotatölfræði ársins 2008 frá embætti Ríkislögreglustjóra.
Þessar tölur koma Sigríði Björnsdóttur hjá Blátt áfram ekki á óvart. Hún segir það mikinn misskilning að kynferðisbrotum gegn börnum hafi fjölgað. Ástæðan fyrir tilkynningaraukningu sé að umræðan er mun opnari en áður.
„Málin eru til staðar og nú er fólk meðvitað um þau. Samfélagið er farið að taka ábyrgð á því að óeðlileg hegðun er óásættanleg og bregst við. Mér finnst þetta jákvætt þó það sé erfitt að horfast í augu við það,“ segir Sigríður.
Sigríður segir að þessi tala muni eflaust hækka á komandi árum. Hún hvetur foreldra sem gruna að verið sé að brjóta á barni þeirra til að hringja í Barnahús. Ef ekkert er að gert gætu afleiðingarnar orðið skelfilegar.
„Hvað gera þessi börn sem fá ekki hjálp? Þau leggja önnur börn í einelti, beita öðruvísi ofbeldi, leiðast út í áfengis- og vímuefnaneyslu eða vændi. Ef við hjálpum ekki börnum sem hafa orðið fyrir ofbeldi þá finna þau sér farveg eða finna sér leið til að lifa af. Það þarf að vernda börn. Það er hluti af uppeldi. Af hverju eru foreldrar svona litlir baráttumenn fyrir börnin sín? Við, fullorðna fólkið, erum að fá yfir okkur kreppu og mótmælum en það þarf líka styðja við börnin. Við þurfum að finna leiðir til að fræða börnin okkar svo þau verði ekki fyrir ofbeldi.“
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 23:32
„Álfur“ hótaði að sprengja upp sveinka
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 23:00
Friðardúfa í vígahug
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 22:30
Tamílum veitt frelsi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 22:20
Löggan stuðaði ódælan 10 ára dreng
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:50
Kirkju Tiger Woods lokað
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:40
„Osama er ekki hér“
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:31
Ríkasti glæpamaður Bretlands í 13 ára fangelsi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:30
Hvatningarverðlaun ÖBÍ afhent
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:26
Hermann Hreiðars og félagar án launa í nóvember
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:25
Óttast um öryggi Polanski - færður um fangelsi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 19:37
Setið um Ásdísi Rán í Búlgaríu
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 18:44
Ellefu ára blind stúlka vill verða söngleikjastjarna
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 18:30
Salt-félög Róberts skulda Glitni 20 milljarða
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 17:00
Hvorki sjónvarp né útvarp á Kópaskeri
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 17:00
Lalli Johns í 2 mánaða fangelsi fyrir innbrot
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:44
Femínistar vara við ábyrgum feðrum
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:42
Dómur þyngdur yfir 61 árs barnaníðingi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:32
Þungir dómar yfir Papeyjarsmyglurum staðfestir
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:29
Stöð 2 að slátra RÚV - SkjárEinn fær útreið
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 15:47







