65 ára gömul kona, Anna Heiðdal, hefur verið kærð fyrir meintan, stórfelldan fjardrátt úr Kaupþingi. Hún starfaði í eignastýringardeild bankans þar til í sumar.
Anna Heiðdal, fyrrverandi starfsmaður í eignastýringu Kaupþings, hefur verið kærð til efnahagsbrotadeildar lögreglunnar fyrir meintan fjárdrátt á tugum til hundruð milljóna króna úr bankanum. Fjárdrátturinn meinti á að hafa staðið yfir um nokkurra ára skeið.
Önnu var sagt upp störfum í bankanum í sumar eftir að upp komst um fjárdráttinn en hún hafði starfað þar síðan 2001. Slitastjórn Kaupþings eða skilanefnd bankans kærði málið til efnahagsbrotadeildarinnar eftir að upp komst um fjárdráttinn. Málið er hið fyrsta sinna tegundar sem kemur upp hér á landi eftir bankahrunið, svo vitað sé.
Anna segir hins vegar aðspurð að hún hafi aldrei stolið neinu úr Kaupþingi og að kæran sé bull. „Ég vissi hvorki haus né sporð um þetta fyrr en ég sá þetta í fréttunum í kvöld. Þetta er algert rugl... Þetta dæmi er ekki til,“ segir Anna sem segist ætla að komast að því ásamt lögfræðingi sínum í dag, mánudag, hvernig standi á þessari kæru sem hún kannast ekkert við.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna