ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Pálmi í Fons: Engin áhætta í Stímmálinu

18:25 › 20. nóvember 2009
Pálmi Haraldsson segir enga áhættu hafa verið í Stímmálinu fyrir Fons.

Pálmi Haraldsson segir enga áhættu hafa verið í Stímmálinu fyrir Fons.

Pálmi Haraldsson, kenndur við eignarhaldsfélagið Fons, segir aðspurður að ekki hafi verið erfitt að ákveða að taka þátt í Stímverkefninu í nóvember 2007 þar sem engin áhætta hafi verið í því fyrir Fons. Líkt og DV hefur greint frá er þess skammt að bíða að Fjármálaeftirlitið sendi Stímmálið til sérstaks saksóknara efnahagshrunsins, Ólafs Haukssonar. Rannsóknin mun þó ekki beinast að Pálma, ef lagt er út af orðum hans sjálfs, heldur fyrst og fremst að Glitni.

„Ekki var nú mikil áhætta í verkefninu, þú ert nú búinn að komast að því... Hvað hefðir þú gert? Ef þú setur þig bara í mín spor og ákveður hvort þú eigir að taka þátt í verkefninu fyrir hönd Fons... Glitnir kemur bara með verkefnið inn á borð til mín og á frumkvæði að því algerlega. Ég kem hvergi þar nálægt. Þeir bara selja mér þetta verkefni alveg eins og sölumaður sem er að selja bíl, skrifborð, stól, flugmiða, bíl eða tölvu eða hvað annað. Síðan eiga menn bara í samningaviðræðum og niðurstaðan verður sú að Fons stofnar þetta sjálfstæða félag í kringum þetta til að taka þetta lán,“ segir Pálmi.

Hluti af samkomulagi Fons við Glitni var að félag Pálma gat hent FS38 aftur í bankann ef það kærði sig um og gengið þannig frá verkefninu án þess að tapa neinu á því, „skilað þeim afurðinni“ eins og Pálmi orðar það. Þetta gerði Fons eftir bankahrunið í haust samkvæmt heimildum DV. „Ég gat skilað þeim afurðinni. En það verður að athuga að á þessum tíma velti enginn því fyrir sér að bréfin gætu orðið verðlaus. Engum datt í hug að þessi bréf gætu tapast. Mér fannst þetta hin besta fjármálaafurð á þeim tíma og hún var í sjálfu sér aldrei slæm af því að maður lenti aldrei í tjóni út af þessu,“ segir Pálmi.
Samkvæmt því sem Pálmi segir liggur ábyrgðin í Stímmálinu fyrst og fremst hjá Glitni en ekki hjá honum og öðrum utanaðkomandi þátttakendum í málinu eins og hluthöfunum sem mynduðu Stímhópinn á endanum.

Stímkaupin virðast hafa verið skipulögð af stjórnendum og eigendum Glitnis til að þjóna hagsmunum þeirra í gegnum Glitni og FL Group. Því má ætla að rannsókn sérstaks saksóknara beinist fyrst og fremst að stjórnendum og eigendum Glitnis og stærsta hluthafans, FL Group: þeim Lárusi Welding, Þorsteini M. Jónssyni, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og þeim starfsmönnum Glitnis sem sáu um Stímmálið.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.