ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Nafnbreyting Kaupþings - tugmilljóna kostnaður

20:51 › 20. nóvember 2009
Það verður ekki ókeypis að skipta um nafn á Nýja Kaupþingi.

Það verður ekki ókeypis að skipta um nafn á Nýja Kaupþingi.

  • Andrés Jónsson almannatengill og sérfræðingur í markaðssetningu. Ekki hrifinn af nýja nafninu.

    Andrés Jónsson almannatengill og sérfræðingur í markaðssetningu. Ekki hrifinn af nýja nafninu.

„Persónulega er ég ekki mjög hrifinn af nafninu,“ segir almannatengillinn Andrés Jónsson um nýtt nafn Nýja Kaupþings, Arion banki. Hann segir ljóst að breytingin verði dýr og óhætt sé að áætla að sá kostnaður hlaupi á tugum milljóna.

„Ég man ekki betur en Íslandsbanki hafi greint frá því að það hafi kostað um 80 milljónir króna þegar þeir skiptu úr Glitni fyrr á árinu. Kaupþing er nú aðeins stærri og að ég held með stærra útibúanet. Þetta er dýrt,“ segir Andrés í samtali við DV.is og má því ætla að kostnaður Arion banka verði ekki minni.

Hann bendir á reynslan hjá Íslandsbanka sé sú að hann hafi komið vel út úr breytingunum fyrr á þessu ári. Minni neikvæð umræða sé í kringum hann eftir að hann hætti að heita Glitnir.

„En fyrir banka sem kannski eyðir hundruð milljóna í markaðsmál þá er þetta kannski ódýrt. Enda segja fræðin að ef nafnið er ekki að virka, þó það kosti, þá eigi menn að skipta,“ segir Andrés en bendir á að persónulega sé hann ekki hrifinn af hinu nýja nafni.

Afhverju ekki íslenskt nafn?
„Ætluðu þeir ekki að vera aðallega á innanlandsmarkaði? Ég velti fyrir mér afhverju þeir völdu ekki eitthvað íslenskt nafn. Ég hefði nefnt hann einhverju nafni upp á íslensku sem lýsti því hvað þeir ætla að standa fyrir,“ segir Andrés. Hann segist þó vona að nafnbreytingin sé tákn um að bankinn sé að fara að snúa við blaðinu því hann segir ímynd bankans, sem og hann sjálfan, ekki hafa fundið taktinn eftir hrun. Þar hafi Íslandsbanki staðið skrefinu á undan.

„En þeir eru ekki óvinsælasti bankinn á Íslandi að mér sýnist,“ segir Andrés um Kaupþing. „Mér sýnist Landsbankinn vera á góðri leið með það og það er miklu eldra nafn sem fórnað verður þegar þeir breyta um.“

Reynt að halda kostnaðinum niðri
Eins og fram kom fyrr í dag segja forsvarsmenn Arion banka reynt verði að halda kostnaði vegna breytinganna í lágmarki. Ásýnd útibúa muni taka breytingum á næstu vikum og endurnýjun á markaðsefni verði unnin á meðan eldri birgðir klárast.

Spurning verður hvort Arion takist að halda kostnaðinum undir 150 milljónum en það var upphæðin sem Íslandsbanki lagði út þegar bankinn tók upp nafnið Glitni árið 2006.

DV hefur ekki tekist að ná í Finn Sveinbjörnsson bankastjóra Arion né upplýsingafulltrúa bankans í kvöld til að fá upplýsingar um hver áætlaður kostnaður við breytinguna sé.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?