ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Glitnir bauð Fons að vera með í Stím

10:09 › 20. nóvember 2009
Sver af sér að hafa átt félagið sem síðar var endurskírt Stím. Hann segir Glitni hafa beðið sig að taka þátt í Stímverkefninu.

Sver af sér að hafa átt félagið sem síðar var endurskírt Stím. Hann segir Glitni hafa beðið sig að taka þátt í Stímverkefninu.

Pálmi Haraldsson segir að Fons hafi aldrei átt eignarhaldsfélagið FS37, sem síðar varð Stím. Mistök KPMG, endurskoðanda Pálma. urðu til þess að í ársreikningi félags í hans eigu kemur fram að Fons hafi átt félagið. Pálmi segist hafa tekið þátt í Stímmálinu því Glitnir hafi leitað til hans og vegna þess að hann gat grætt á viðskiptunum. Hann segir áhættuna fyrir sig og Fons hafa verið enga.

Pálmi Haraldsson athafnamaður, kenndur við eignarhaldsfélagið Fons, sver af sér öll eigendatengsl við eignarhaldsfélagið FS37 ehf., sem síðar var endurnefnt Stím. Hann segir að öfugt við það sem fram komi í ársreikningi félags í eigu Fons, FS38 ehf., frá árinu 2007 hafi Fons aldrei átt FS37. KPMG hefur sent ársreikningaskrá bréf þar sem mistökin eru leiðrétt og farið er fram á það að ársreikningi FS38 verði breytt þannig að ekki komi þar fram að Fons hafi átt FS37, síðar Stím.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.