Vilhjálmur Bjarnason, formaður Félags fjárfesta og lektor í Háskóla Íslands, gagnrýnir bæði Glitni og foreldrana harðlega fyrir lánveitingarnar til barnanna tíu. Hann telur ábyrgðina þó fyrst og fremst hjá bankanum.
Í DV er greint frá því að barnalán Glitnis til stofnfjárkaupa í sparisjóðnum Byr fóru flest til barna systkinanna úr Nóatúnsfjölskyldunni. Vilhjálmur gagnrýnir lánveitingarnar harðlega.
„Þetta blessaða starfsólk í Glitni var gersamlega óhæft til að starfa í banka. Þetta er byrjendaatriði í lögfræði: Að lána ekki fé til ólögráða einstaklinga. Foreldarnir eru náttúrlega galnir líka. En lítum bara á þátt bankans. Auðvitað lenda lánveitendur oft í því að það kemur galið fólk í bankann og biður um lán. Þá segir bankinn bara: Því miður, þetta er andstætt öllum reglum. Farðu út. Bankinn gerði þetta ekki í þessu tilfelli og samkvæmt öllum reglum er bankanum ekki heimilt að gera það sem hann gerði,“ segir Vilhjálmur.
„Bankinn veit að hann má ekki lána ófjárráða einstaklingum en samt gerir hann það. Þetta lýsir bara fyrst og fremst heimsku bankans. Þetta er heimskt fólk og siðblint og á ekki að koma nálægt fjármálum,“ segir Vilhjálmur um starfsfólk Glitnis sem keyrði lánveitingarnar í gegn.
Nánar um málið í DV í dag.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir