Sláandi líkur Davíð Oddssyni og starfar meira að segja sem umsjónarmaður Gullbankans. Teikning: Þórarinn Leifsson
Rithöfundurinn og teiknarinn, Þórarinn Leifsson, gaf á dögunum út barnabókina Bókasafn ömmu Huldar. Í bókinni er vondi kallinn umsjónarmaður Gullbankans sem er ansi líkur Davíð Oddssyni.
„Persónurnar í mínum bókum eru aldrei byggðar beint á einhverri persónu þó að vissulega séu oft einhver áhrif héðan og þaðan,“ segir Þórarinn, sem er rithöfundur og teiknar, um persónuna Hávar M. Grímsson í nýjustu bók sinni, Bókasafn ömmu Huldar, en hann er sláandi líkur Davíð Oddssyni. Ekki nóg með það heldur er Hávar einnig umsjónarmaður Gullbankans sem hæglega gæti verið Seðlabankinn.
Blaðamaður var ekki sá fyrsti sem færði þetta í tal við rithöfundinn. „Það eru margir sem tengja Hávar við Davíð Oddsson,“ segir Þórarinn. „Þessi bók er táknsaga og stútfull af pólitík. Ég myndi samt aldrei nenna að skrifa bók bara til þess að dissa Davíð Oddsson. Fólk er oft að stríða mér þegar það trúir ekki að Hávar sé ekki Davíð en það er náttúrlega ekki hægt að byggja karakter á einhverri þráhyggju gegn einum manni. Það er kannski fyndið í myndasögu en ekki í bók,“ segir Þórarinn og hlær dátt.
Nánar er rætt við Þórarinn í DV í dag.






Hvolpurinn einkamál Vilhjálms og Katrínar
Christina Aquilera þarf að hvíla sig á brúnkukremi
Líður vel nakinni
Sjáðu bestu nærfataauglýsingar Beckhams
Þyngdin er vandamál