Benedikt Einarsson, sérfræðingur á lánasviði Landsbankans, aðstoðaði eigendur World Class við að færa verðmæti úr greiðsluþrota félagi yfir í annað félag. Samkvæmt heimildum DV rifti hann leigusamningnum við félagið í fjárhagsvandanum, Þrek ehf., og síðan var leigan færð yfir í upprunalegt rekstrarfélag líkamsræktarstöðvanna, Laugar ehf., með aðstoð lögmanns.
Björn Leifsson játar að rekstarsamningar og daglegar tekjur, þar með talinn viðskiptahópur félagsins, sem hefur að geyma fyrir tuttugu þúsund meðlimi, hafi verið færðar milli félaga til að bjarga rekstrinum. Til þess að það væri hægt þurfti aðstoð Landsbankans.
Þrek ehf. stefnir hraðbyri í gjaldþrot þar sem félagið var í ábyrgð fyrir lánum í útrásarverkefni í Danmörku. Eftir að danska ævintýrið gekk ekki upp féllu ábyrgðir á félagið og til að bjarga rekstrinum ákvað Björn að færa hann yfir á annað félag. Þangað hafa rekstrarsamningar og daglegar tekjur World Class verið færðar. Það kom í hlut Landsbankans, ásamt lögmanni eigenda World Class, að færa húsleigusamning World Class Laugum af hinu gjaldþrota fyrirtæki yfir á annað félag.
Aðspurður játar Björn því að rekstri líkamsræktarstöðvanna hafi verið bjargað með áðurnefndum hætti en leggur áherslu á að ferlið sé allt saman löglegt. „Húsið er nú leigt inn á hina kennitöluna, ef við horfum á þetta kalt frá sjónarhóli Landsbankans þá er eðlilegt að þeir hafi viljað færa leiguna á aðra kennitölu og halda áfram að hafa reksturinn í höndum þeirra sem kunna að reka þetta. Hvað átti bankinn að gera? Færa þetta í hendurnar á Jóhannesi í Bónus?,“ spyr Björn og bætir við. „Ég fékk meira að segja lækkun á leigunni."
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fást engin svör frá Landsbankanum. Bankinn ber fyrir sig bankaleynd og neitar að svara spurningum DV um málið.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir