Barnalán Glitnis til stofnfjárkaupa í sparisjóðnum Byr fóru flest til barna systkinanna úr Nóatúnsfjölskyldunni. Fjárfestingafélag fjölskyldunnar, Saxhóll, var stór hluthafi í Glitni og Byr. Eitt systkinanna segir að þáttur Glitnis megi ekki gleymast og að hann hefði ekki skuldsett börn sín ef hann hefði vitað að það væri ólöglegt. Hann segir að það hafi verið freistandi að taka lán fyrir börnin þar sem Glitnir hefði kynnt lánveitingarnar sem áhættulausar. Hann sér ekki siðleysið í því að skuldsetja börn sín.
Systkinahópurinn sem um ræðir eru börn Jóns Júlíussonar, fyrrverandi eiganda Nóatúnsverslananna, sem seldi verslanirnar inn í Kaupás árið 2000. Samkvæmt heimildum DV eru flest af börnunum úr fjölskyldum systkinanna. Fjárfestingafélag systkinanna, Saxhóll, átti um 7,5 prósenta hlut í Byr og félag sem var að hluta til í eigu þess, Saxbygg, keypti 5 prósenta hlut í Glitni í apríl 2007 fyrir um 20 milljarða króna. Saxhólssystkinin voru því stórir hluthafar í báðum fjármálafyrirtækjunum, Byr og Glitni, þegar stofnfjáraukingin fór fram.
Eitt af Nóatúnssystkinunum, Einar Örn Jónsson, viðurkennir að hafa tekið lán hjá Glitni í nafni tveggja barna sinna. Þau eru fædd árin 1991 og 1999. „Forsendan á bak við þetta hjá okkur var sú að bankinn ætlaði bara að ganga að þessum bréfum ef þetta gengi ekki upp og punktur,“ segir Einar Örn. Aðspurður hvort hann telji að þetta réttlæti þá ákvörðun foreldranna að taka lán fyrir hönd barnanna og skuldsetja þau þar með segir Einar: „Ef það er engin áhætta í þessu, hvort sem það eru börn eða aðrir, hlýtur að vera ákaflega freistandi að taka slík lán... Við fengum svo bara fjármálakerfið á hliðina en á þessum tíma voru menn öðruvísi stemmdir og töldu ekki mikla áhættu í þessu,“ segir Einar Örn en arðgreiðslurnar af stofnfjáreigninni áttu að greiða Glitnislánin niður á árunum 2008 og 2009. Hrunið setti hins vegar strik í reikninginn og stofnfjárbréfin hafa hrunið í verði og því hyggst Íslandsbanki ganga að þeim sem ekki geta staðið í skilum - þetta á þó ekki við um börnin sem fengu lán.
Þegar lánveitingarnar voru veittar í stofnfjáraukningunni átti sér stað mikil valdabarátta innan Byrs um framtíðaryfirráð yfir sparisjóðnum og má reikna með að lánveitingarnar til barnanna hafi verið liður í þessari baráttu.
Í nær öllum tilfellum er stofnfjáreign barnanna sú sama: rúmlega 14 milljónir króna. Öll áttu börnin stofnfjárbréf fyrir stofnfjáraukninguna í Byr en höfðu einungis rétt á að kaupa ákveðið magn bréfa til viðbótar, upp að ákveðinni upphæð, og skýrir það þá staðreynd að flest þeirra eiga jafnmikið af stofnfjárbréfum.






Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“