ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Ekkert barnalán í stofnfjáraukningu Sparisjóðsins

17:00 › 2. nóvember 2009
Heimildir DV herma að engin lán hafi verið veitt til ólögráða einstaklinga í stofnfjáraukningu Sparisjóðsins í Keflavík árið 2007. Landsbankinn fjármagnaði stofnfjáraukninguna.

Heimildir DV herma að engin lán hafi verið veitt til ólögráða einstaklinga í stofnfjáraukningu Sparisjóðsins í Keflavík árið 2007. Landsbankinn fjármagnaði stofnfjáraukninguna.

Engin lán voru veitt á kennitölur ólögráða einstaklinga í stofnfjáraukningu Sparisjóðsins í Keflavík sem fram fór árið 2007, samkvæmt heimildum DV. Stofnfjáraukningin nam um milljarði króna og fjármagnaði Landsbankinn hana að stærstu leyti. Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu í kjölfarið á fréttum þess efnis að stofnfjáreigendur í sparisjóðnum Byr hafi skuldsett börnin sín með lánum frá Glitni til að kaupa stofnfjárbréf í honum árið 2007. Enn sem komið virðist barnalán Glitnis því vera einsdæmi.

Stofnfjáraukningin í Sparisjóði Keflavíkur fór þannig fram að Landsbankinn veitti Sparisjóðnum í Keflavík heildsölulán sem notað var til að lána stofnfjáreigendum sparisjóðsins fyrir stofnfjáraukningunni. Öll samskipti stofnfjáreigendanna sem juku við stofnfé sitt fóru fram við Sparisjóðinn en ekki við Landsbankann. Eftir að það lá ljóst fyrir hverjir ætluðu að taka þátt í stofnfjáraukningunni sendi Sparisjóðurinn kennitölur viðkomandi aðila til Landsbankans sem svo sá um að greiða umbeðnar upphæðir inn á reikninga stofnfjáreigendanna. Þessu var öfugt farið í stofnfjáraukningu Byrs þar sem stofnfjáreigendurnir fengu lánin frá Glitni.

Heimildir DV herma hins vegar að enginn af þeim sem Landsbankinn lagði lánin inn á hafi verið undir lögaldri. Aldur lántakandanna mun hafa verið athugaður, líkt og yfirleitt er gert í slíkum tilfellum, áður en lánin voru lögð inn á þá. „Ég get staðfest það við þig að hér var engum ófjárráða einstaklingi lánað. Það hefur aldrei gerst í tíð minni í bankanum að ófjárráða einstaklinur hafi fengið lán,“ segir heimildarmaður DV innan úr Landsbankanum sem segist ekki ennþá skilja hvernig starfsmönnum Glitnis datt í hug að lána ófjárráða fólki fyrir stofnfjárbréfum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?