Sigrún Karlsdóttir, móðir barna sem fengu lán hjá Glitni til að kaupa stofnfjárbréf í Byr í desember 2007, segist ekki vera galin þrátt fyrir að hún hafi tekið lánin í nafni barnanna sinna. Sigrún er eiginkona Jóns Þorsteins Jónssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Byrs og eins af eigendum eignarhaldsfélagsins Saxhóls sem var stór hluthafi í Byr. DV greinir frá því í dag að barnalánin hafi flest runnið til Jóns Þorsteins og systkina hans og er viðtal við eitt þeirra í DV í dag. Sigrún lætur þessi orð falla í athugasemd við frétt DV inni á DV.is
Í athugasemdinni segir Sigrún, og er augljóslega nokkuð mikið niðri fyrir út af fréttaflutningi af málinu. „Ég er ekki galin. Ég er mjög ábyrg sem foreldri. Börnin mín áttu stofnfé í Byr og tóku þátt í stofnfjáraukningu til að þeirra hlutur skertist ekki. Glitnir bauð lán og lét þess getið í bréfi til allra stofnfjáreigenda að einungis yrði tekið veð í bréfunum sjálfum. Ekki yrði krafist frekari veða. Glitnismenn höfðu mikinn áhuga á að eignast Byrbréf,“ segir Sigrún og reynir þar með koma ábyrgðinni fyrir lánveitingunum alfarið yfir á Glitni. Bróðir eiginmanns hennar, Einar Örn Jónsson, gerir slíkt hið sama í viðtali við DV í dag. Hvorugt þessara foreldra virðist sjá neitt athugavert við það í sjálfu sér að skuldsetja ólögráða einstaklinga: börn. Flestir sem hafa tjáð sig um málið á opinberum telja hins vegar að ábyrgðin liggi bæði hjá foreldrunum og bankanum.
Og Sigrún heldur áfram og gagnrýnir einnig Íslandsbanka í athugasemdinni: „Ný stjórn í nýjum banka, Íslandsbanka, hefur ekki lengur áhuga á bréfunum og ætla því að reyna að svíkja stofnfjáreigendur með því að innheimta annað en bréfin sjálf,“ segir Sigrún en líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum þá var eina veðið fyrir lánunum í stofnfjárbréfunum sjálfum og átti bankinn ekki að geta gengið að öðrum veðum. Bréfin í Byr sem lánað var fyrir eru nú orðin verðlaus og því gagnslítil fyrir bankann. Fjöldi málaferla er yfirvofandi gegn Íslandsbanka út af málinu og er helsti ásteytingarsteinninn hvort bankanum sé heimilt eða ekki að ganga að öðrum veðum en stofnfjárbréfunum, líkt og hann ætlar sér. Stofnfjáreigendurnir sem tóku lánin telja sig hins vegar illa svikna og skoða margir þeirra nú réttarstöðu sína.
Að lokum sendir Sigrún þeim tóninn sem hafa gagnrýnt þá foreldra sem skuldsettu börnin sín í stofnfjáraukningunni í Byr. Athugasemd hennar lýkur á eftirfarandi orðum: „Svo að lokum til þeirra sem eru að gagnrýna mig og fleiri: Skammist ykkar sjálf fyrir að kynna ykkur ekki málin og fyrir að græta börnin mín með því að skrifa svona um foreldra þeirra.“





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir