Systir Bjössa afneitar honum
Sár systir. Ásta Hrönn er leið yfir framkomu litla bróður síns. Mynd Rakel Ósk Sigurðardóttir.
Ásta Hrönn Björgvinsdóttir, hálfsystir Björns Leifssonar, eiganda World Class, afneitar litla bróður sínum. Þau eru hálfsystkini en voru alin upp saman. Ásta hefur þurft að ræða við bróður sinn í gegnum dómstóla þar sem hún, eiginmaður hennar og systkinabörn Björns hafa öll höfðað mál gegn honum vegna meintra skulda.
„Ég get ekki verið ánægð með framkomu hans, allra síst í ljósi þess að hann er bróðir minn en hann virðist hafa gleymt þeirri staðreynd einhvers staðar á leiðinni,“ segir Ásta Hrönn Björgvinsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri World Class á Akureyri og hálfsystir Björns Leifssonar, eiganda World Class á Íslandi.
Ásta Hrönn og Björn eru hálfsystkini, sammæðra, og ólust upp á sama heimilinu þar til þau fluttu að heiman. Síðar stofnuðu þau saman fyrirtækið Þrekhöllina ehf. sem hélt utan um heilsuræktarstöðina World Class á Akureyri. Ásta Hrönn var framkvæmdastjóri fyrirtækisins og sá alfarið um rekstur stöðvarinnar sem hófst síðla árs 1997. Í ein sex ár stýrði Ásta Hrönn fyrirtækinu og er það leið undir lok vildi hún meina að Björn, litli bróðir hennar, skuldaði henni laun.
Svo fór að Ásta Hrönn stefndi Birni fyrir ógoldin laun og hið sama gerðu börnin hennar sem störfuðu á líkamsræktarstöðinni. Í lok maí í fyrra var fyrirtæki Björns dæmt til að greiða systurbörnum hans launin.
Nánar í DV.
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 22:30
Upptekin Unnur Birna hafnaði BBC
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 22:03
Opnar kannabisskóla í kreppunni
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 21:39
Líkfundur í Miklagljúfri
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 20:43
Leiður á erlendri eiginkonu sinni og skilaði henni í Kvennathvarfið
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 20:29
Tiger Woods rífur þögnina – forðast lögguna
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 20:29
Kviknaði í jólatrjánum hjá Wal-Mart
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 19:30
Hjólandi „iPod-uppvakningar“ hættulegir í umferðinni
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 18:53
Fíkniefnapar í haldi eftir húsleitir
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 18:45
Boðflennur Bandaríkjaforseta leita tilboða
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 16:06
Gunnar Jarl bæði leikmaður og dómari í vinsælum tölvuleik
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 16:01
Ramos í viðtali: Farinn að skilja íslensku
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 15:50
Íslensk list í þágu góðs málefnis
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 14:35
Frestur Kaupþings rennur út á morgun
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 14:11
Svíi hreinsaður af ásökunum um að hafa myrt eiginkonu sína
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 13:41
Íslendingar kjósi um aðild að NATO
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 13:27
Snarræði ökumanna kom í veg fyrir stórslys í Ártúnsbrekku
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 12:53
Vinir tókust á í Silfri Egils
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 12:11
Albínóar í felum í Afríku-Óttast limlestingar
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 11:51
Bankar ekki með eftirlit á samkeppni
Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 11:13







