ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.0° 2m/s WSW

Strippstaður KSÍ: Fjórðungur stjórnar telur brottvikningu hugsanlega

09:17 › 19. nóvember 2009
Pálmi heimsótti strippstaðinn þar sem þessi stúlka dansar.

Pálmi heimsótti strippstaðinn þar sem þessi stúlka dansar.

Fjórðungur stjórnarmanna Knattspyrnusambands Íslands, kSÍ, telur hugsanlegt að Pálma Jónssyni, fjármálastjóra sambandins, verði vikið frá störfum. Það er niðurstaða óvísindalegrar könnunar sem DV gerði meðal stjórnarmanna fyrir stjórnarfund KSÍ sem haldinn verður síðdegis í dag. Rétt er að taka það fram að fjórðungurinn sagði það hugsanlega rétt að fjármálastjórinn ætti að víkja en aðrir stjórnarmenn vildu ekki gefa upp hug sinn.

Stjórnarmennirnir voru jafnframt þeirrar skoðunar að slælega hafi verið tekið á því þegar upp komst að Pálmi hafði í ferð á vegum sambandsins heimsótt strippstað og teknar höfðu verið háar fjárhæðir út á kreditkort KSÍ. Besta leiðin, að mati stjórnarmannanna sem DV ræddi við, hefði verið sú að víkja fjármálastjóranum úr starfi, að minnsta kosti tímabundið, á meðan málið væri skoðað ofan í kjölinn og stjórn sambandsins hefði fjallað um málið.

Um leið og fjórðungurinn er þeirrar skoðunar að í dag eigi Pálma hugsanlega að vera vikið úr starfi þá telur hann eðlilegt að einhverjir þurfi að fjúka með í leiðinni. „Ég hefði tekið allt öðruvísi á málinu á sínum tíma og þá hefði viðkomandi hugsanlega átt að víkja. Nú þegar stjórnin tekur málið loksins fyrir þá er það mín skoðun að hann eigi hugsanlega að víkja og þá jafnvel fleiri með honum,“ segir Árni Ólason, fulltrúi í stjórn KSÍ.

„Að sópa hlutunum undir teppi gengur aldrei. Ég er viss um að margir stjórnarmenn eru hneykslaðir yfir þessu. Ef niðurstaðan verður sú að hann verður látinn fara þá eiga fleiri að fara með honum. Ég veit hins vegar að viðkomandi er mjög góður starfsmaður og hefur verið með flekklausan feril,“ bætir Árni við.

Ingibjörg Hinriksdóttir stjórnarmaður undrast hvers vegna stjórnin hafi ekkert verið upplýst um málið fram til þessa. Aðspurð telur hún tímana breytta og því komi brottvikning fjármálastjórans til greina. „Það er ljóst að málinu var sópað undir teppi og það er afleitt. Ég trúi því að margir séu ósáttir með hvernig tekið var á málinu. Það liggur alveg ljóst fyrir að öðruvísi átti að halda á málinu því það varðar miklu meira en einn mann, Pálma Jónsson, því það er ljóst að þetta skaðar alla hreyfinguna og er afar óheppilegt mál í alla staði. Málið er eiginlega meira en alvarlegt,“ segir Ingibjörg.
„Þetta snýst um æru og heiður KSÍ. Ég get alveg tekið undir það að hann hefði átt að víkja þá þegar og málið kom upp. Útfrá því get ég alveg sagt það að hugsanlega eigi hann enn að víkja. Brottvikning er einn möguleikinn í stöðunni og annar möguleiki er sú að fleiri þurfi að víkja. Hugsanlega á ég að víkja.“

Jakob Skúlason stjórnarmaður reiknar með því að fjallað verði ítarlega um málið á fundinum í dag og þar fáist fullnægjandi skýringar. „Stjórnin átti að fjalla um þetta mál á sínum tíma. Ég er að undirbúa mig núna og ætla að mæta undirbúinn á fundinn. Í rauninni veit maður lítið meira en það sem fram hefur komið í fjölmiðlum,“ segir Jakob.
„Atburðarrásin er ekki sem skildi og ég harma það. Við þurfum að hugsa um að hreyfingin verði fyrir sem minnstum skaða en ef það sem komið hefur fram er staðreynd þá erum við ekki í góðum málum. Ferillinn var ekki í lagi og ég er ekki sáttur við að þessu var sópað undir borð. Það er enn margt óútskýrt í málinu. Meðan málið var í rannsókn tel ég rétt að fyrstu viðbrögð hefðu átt að vera að maðurinn viki tímabundið, það hefði ég verið mjög sáttur með.“

Pálmi heimsótti súlustaðinn Rauðu mylluna í Sviss og kom heim með 3,2 milljóna kortareikning á kreditkort KSÍ. Frá upphafi hefur hann fullyrt að kortið hafi verið misnotað og greiddi skuldina sjálfur og því hlaut KSÍ ekki fjárhagslegan skaða.

Sjálfur hefur Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, viðurkennt að í dag hefði hann mögulega tekið öðruvísi á málinu heldur en hann gerði fyrir fjórum árum. Geir sagði heimsókn Pálma á súlustaðinn ekki vera í anda KSÍ en hugsanlega hefði hann sofnað á staðnum og kortunum stolið af honum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.