ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.0° 2m/s WSW

KSÍ mun ekki aðhafast neitt – biður þjóðina afsökunar

19:47 › 19. nóvember 2009
Geir Þorsteinsson formaður KSÍ.

Geir Þorsteinsson formaður KSÍ.

  • Pálmi Jónsson, iðrast, var áminntur og sleppur.

    Pálmi Jónsson, iðrast, var áminntur og sleppur.

Stjórn KSÍ fundaði í dag vegna meintra kampavínskaupa Pálma Jónssonar fjármálastjóra sambandsins í Zürich árið 2005. Sambandið sendi frá sér yfirlýsingu þar sem stjórnin kveðst ekki ætla að aðhafast neitt frekar vegna málsins. Áminning sem Pálmi hlaut á sínum tíma þykir duga.

Pálmi lítur svo á að hann sé fórnarlamb skipulagðrar glæpastarfsemi hvar hann var staddur á Moulin Rouge í rauða hverfinu í Zürich árið 2005. Hann var staddur í Sviss á vegum KSÍ en ákvað að bregða sér út á lífið. Hann vaknaði hins vegar með þá timburmenn að rúmlega þrjár milljónir króna voru horfnar af kreditkorti KSÍ, sem og hans eigin korti. Hann reyndi að sækja forsvarsmenn staðarins til saka í Sviss en varð ekki ágengt og ábyrgðin talin hans.

KSÍ sendir frá sér ályktunina í kvöld og er hún samhljóða þeirri sem Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra fær, en hún sendi stjórninni formlegt erindi þar sem hún krafðist svara vegna málsins eftir að DV hafði vakið athygli á því.

Fjármálastjórinn missteig sig
„Samkvæmt lögum KSÍ ber því að vera leiðandi afl fyrir íslenska knattspyrnu og fulltrúum þess ber að koma fram af heiðarleika og sýna gott siðferði. Í því tilfelli sem hér um ræðir missteig fjármálastjórinn sig og hlaut refsingu sem metin var hæfileg á þeim tíma. Það er staðföst skoðun KSÍ að gott siðferði sé mikilvægt veganesti í starfi íþróttahreyfingarinnar en það er ekki síður mikilvægt að þegar menn hafa misstigið sig og tekið út sinn dóm að horfa fram á veginn, fyrirgefa og læra af þeim mistökum sem gerð voru,“ segir í yfirlýsingu KSÍ.

Starfshópur semur siðareglur
Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum að skipa starfshóp sem fær það verkefni að sema siðareglur KSÍ sem eigi að taka gildi 1. janúar næstkomandi en slíkt er í samræmi við kröfur FIFA.

„markmiðið er ávallt að fulltrúar KSÍ séu til sóma á innlendum sem erlendum vettvangi,“ segir enn fremur.

Á móti ofbeldi
Stjórn KSÍ tekur sérstaklega fram í yfirlýsingunni að sambandið hafni ofbeldi af öllum toga.

„Knattspyrnusamband Íslands stendur í þakkarskuld við íslenska þjóð sem hefur um langa tíð stutt vel við knattspyrnuíþróttina. Stjórn KSÍ harmar tildrög þessa máls og biður þjóðina, knattspyrnuhreyfinguna og aðildarfélög sín afsökunar á því.“

Feministafélag Íslands hefur þegar opinberað þá skoðun sína að stjórn KSÍ beri að segja af sér vegna málsins en svo mun þó ekki fara.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.