ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 4m/s E

KSÍ: Kampavínsfundur fyrir luktum dyrum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:35 › 19. nóvember 2009
Lok, lok og læs. Langur fundur stjórnar KSÍ stendur enn yfir.

Lok, lok og læs. Langur fundur stjórnar KSÍ stendur enn yfir.

  • Stjórnarmenn skunda á fundinn.

    Stjórnarmenn skunda á fundinn.

Eins og fram kom á DV.is í morgun hófst fundur Knattspyrnusambands Íslands þar sem ræða á greiðslukortaskandal Pálma Jónssonar fjármálastjóra sambandsins í Zürich í Sviss árið 2005. Fundurinn var lokaður og fjölmiðlar fengu ekki að mynda upphaf hans.

Hann stendur enn og búast stjórnarmenn við að hann geti staðið fram eftir kvöldi.

Samkvæmt heimildum DV þykir ólíklegt að Pálma verið vikið úr starfi vegna málsins, sem loks nú, fjórum árum síðar, er fundað um sérstaklega í stjórn KSÍ eftir að DV.is greindi frá því á dögunum.

Eins og fram kom á DV.is í morgun taldi um fjórðungur stjórnarmanna hugsanlegt að Pálma yrði gert að víkja. Aðrir vildu lítið tjá sig um möguleikann.

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sendi KSÍ formlegt erindi á dögunum þar sem hún krafðist svara. Hvernig það væri hreinlega hægt að hægt væri að glata milljónum króna af korti sambandsins á strippstað í rauða hverfi Zürich.

Lesa má alla umfjöllun DV.is um málið hér að neðan með því að smella á tengt efni:



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.