Besti flokkurinn, stjórnmálaflokkurinn sem Jón Gnarr stofnaði á dögunum, hefur opnað heimasíðu. Þar gefst fólki tækifæri á að taka þátt í lifandi umræðu sem byggir á lýðræðislegum gildum eins og það er orðað á heimasíðunni. Stofnun flokksins hefur vakið talsverða athygli enda ekki á hverjum degi sem ástsæll gamanleikari stofnari stjórnmálaflokk.
Á heimasíðunni kemur fram að flokkurinn ætli sér ekki að gera ekki neitt. Þvert á móti. Tilgangurinn sé að koma Jóni Gnarr í þægilegt launað embætti þar sem hann hafi völd til að hjálpa sjálfum sér, fjölskyldu og vinum. „Við segjum það samt ekki nema fólk spyrji beint um það. Besti Flokkurinn lýgur engu nema taka það sérstaklega fram að um lygi sé að ræða. Þetta er heiðarlegur flokkur sem er byggður á lygi. Þannig er hann ólíkur öllum öðrum flokkum,“ segir á síðunni.
Áhugasamir geta skoðað síðuna hér.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
