Feðgarnir færðu línskipið Þorlák og kvóta á milli kennitalna og skildu miklar skuldir eftir á þeirri gömlu.
Stímfeðgarnir Jakob Valgeir Flosason og Flosi Valgeir Jakobsson, útgerðarmenn frá Bolungarvík, eiga í miklum rekstrarerfiðleikum með útgerðarfélag sitt Jakob Valgeir ehf. þrátt fyrir að hafa flutt línuskipið Þorlák og 40 prósent af kvóta skipsins af gömlu kennitölunni yfir á aðra, kennitölu útgerðarfélagsins Guðbjarts ehf., í upphafi ársins. Tap félagsins á síðasta ári nam rúmum þremur milljörðum króna og skuldirnar nema tæpum sex milljörðum króna. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2008.
Guðbjartur ehf. var í eigu þeirra feðga og Ásgeirs Guðbjartssonar skipstjóra, sem kenndur er við togarann Gugguna frá Ísafirði. Jakob Valgeir á tæp 44 prósent í félaginu og Flosi Valgeir á tæp 33 prósent. Gamla kennitalan er aftur á móti í félagi sem heitir JV ehf. og sagði Jakob Valgeir við DV í sumar að hann byggist við að sú kennitala færi í þrot. Ársreikningi JV. ehf fyrir árið 2008 hefur ekki verið skilað og því er ekki hægt að átta sig á stöðu félagsins sem feðgarnir tóku eignirnar út úr.
Kennitöluflakkið hjá feðgunum var gert með samþykki viðskiptabanka þeirra, Íslandsbanka og Landsbankans. „Já, já, við fengum bara samþykki frá bönkunum til að færa þetta yfir á aðra kennitölu. Þeir voru bara með í þessu,“ sagði Jakob Valgeir í sumar en kennitölufærslan er ein af mörgum sem sagt hefur verið frá í fjölmiðlum eftir efnahagshrunið í fyrrahaust.
Feðgarnir eru kenndir við eignarhaldsfélagið Stím sem í nóvember 2007 keypti hlutabréf í Glitni og FL Group fyrir tæpa 25 milljarða króna, að mestu með kúluláni frá Glitni. Þeir voru hluthafar í félaginu og var Jakob Valgeir stjórnarformaður þess. Kaup Stíms á hlutabréfunum hafa verið til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu um langt skeið og er talið að hugsanlega hafi verið um markaðsmisnotkun að ræða sem ætlað hafi verið að falsa eftirspurn eftir hlutabréfum í félögunum og hækka gengi þeirra. Málið verður sent til sérstaks saksóknara innan skamms.
Ársreikningur félagsins sýnir því fram á nokkuð erfiða stöðu enda segir í honum, þar sem rætt er um hrun íslenska efnahagskerfisins og afleiðingar þess fyrir Jakob Valgeir ehf.: „Ekki er fyrirséð hvaða áhrif þetta ástand hefur á stöðu félagsins og rekstur í framtíðinni og er því almenn óvissa um rekstrarhæfi félagsins.“ Þrátt fyrir þetta segir í lok ársreikningsins að rekstur félagsins fyrstu mánuði ársins 2009 hafi gengið vel og að það hafi getað staðið í skilum með skuldbindingar sínar. Jakob Valgeir segir að félagið hafi getað staðið í skilum, líkt og komi fram í ársreikningnum. „Staðan hjá okkur er allt í lagi. Við höfum getað staðið í skilum. Þetta hefst alveg hjá okkur þó félagið sé þétt skuldsett,“ segir Jakob Valgeir.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna