ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Klámmynda- leikstjóri gerir mynd um Jaycee Dugard

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:20 › 18. nóvember 2009
Jaycee Lee Dugard var ellefu ára þegar henni var rænt.

Jaycee Lee Dugard var ellefu ára þegar henni var rænt.

Hryllings- og klámmyndaleikstjóri hyggst gera mynd um lífsreynslu Jaycee Lee Dugard sem rænt var af kynferðisbrotamanninum Phillip Garrido þegar hún var ellefu ára gömul og haldið í átján ár og nauðgað. Dugard-fjölskyldunni er misboðið.

Kvikmyndagerðamaðurinn Shane Ryan segir að hann sé að hefja undirbúningsvinnu að myndinni Abducted Girl, an American Sex Slave, og fari vinna við hana á fullt í næsta mánuði.

Ryan er ýmist kallaður klámmyndaleikstjóri eða framleiðandi ódýrra hryllingsmynda í bandarískum fjölmiðlum og hefur áður gert myndirnar Amateur Porn Star Killer og Romance Road Killers meðal annarra.

Talsmaður Jaycee Lee Dugard segir að hún og fjölskylda hennar eigi að hafa lokaorðið með hvort og þá hvenær gera á mynd um raunir hennar þau átján ár sem hún bjó með ræningja sínum.

Talsmaðurinn segir hugmynd Ryan litaða af tækifærismennsku, hún sé særandi og gríðarlega óvinsamlega.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.