ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Fékk sjö milljarða frá Magnúsi bróður

11:10 › 16. nóvember 2009
  • Efsti hluti trúnaðarskjalsins frá KPMG.

    Efsti hluti trúnaðarskjalsins frá KPMG.

Trúnaðarskjal frá KPMG sýnir hvernig Magnús Kristinsson tók yfir eign Birkis Kristinssonar bróður síns í Gnúpi árið 2007. Sjö milljarðar króna runnu til Birkis sem var starfsmaður Glitnis á þeim tíma.

Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, borgaði bróður sínum Birki Kristinssyni, fyrrverandi landsliðsmarkverði í fótbolta og starfsmanni Glitnis, 7 milljarða króna árið 2007 þegar hann yfirtók sameiginlegar fjárfestingar þeirra bræðra í fjárfestingafélaginu Gnúpi. Viðskiptafléttan tengdist nokkrum eignarhaldsfélögum þeirra.

Þetta kemur fram í minnisblaði frá skattasviði endurskoðendaskrifstofunnar KPMG frá því í apríl 2007 sem DV hefur undir höndum. Minnisblaðið ber yfirskriftina: „Viðskipti milli einkahlutafélaga í eigu Birkis Kristinssonar og Magnúsar Kristinssonar - álitaefni?“ Skjalið er merkt einka- og trúnaðarmál.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.