Breskir ferðamenn á Kanaríeyjum veittu því athygli að sígaretturnar þeirra voru eitthvað öðruvísi en heima.
Tollgæslumenn á Spáni hafa haldlagt gríðarlegt magn af fölsuðum sígarettum sem átti að selja sem þekktar sígarettutegundir. Líklega er það eins gott, því í stað reyktóbaks eins og venjan er í sígarettum, voru þær fullar af þurkuðum kanínuskít. Sígarettufölsunin virðist hafa verið arðvænlegur bransi, því talið er að hægt hefði verið selja lagerinn af fölsuðu sígarettunum fyrir rúmar 200 milljónir króna.
Upp komst um málaið þegar breskir ferðamenn á Kanaríeyjum, kvörtuðu yfir því að finna undarlega lykt í hvert skipti sem þeir kveiktu sér í sígarettu. „Það angaði allt. Lyktin var eins og fólk getur ímyndað sér - af brennandi skít,“ sagði tollvörður á Tenerife.
Lögreglan handtók tólf smyglara í leynilegri aðgerð. Talið er að sígaretturnar hafi komið frá Kína. „Þær lykta ekki aðeins illa, heldur eru þær líka eitraðar,“ sagði tollvörðurinn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna