ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

„Væri betur varið í Icesave“

Valgeir Örn Ragnarsson valgeir@dv.is
13:23 › 15. nóvember 2009
Guðmundur Ólafsson: „Annaðhvort verða menn að setja hér upp stalínískt gjaldeyriskerfi þar sem allt er lokað eða skipta um gjaldmiðil.“

Guðmundur Ólafsson: „Annaðhvort verða menn að setja hér upp stalínískt gjaldeyriskerfi þar sem allt er lokað eða skipta um gjaldmiðil.“

Guðmundur Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands og Háskólann á Bifröst, telur að inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði séu mistök. Í helgarblaði DV kemur fram að Seðlabankinn hafi varið um 13 milljörðum króna það sem af er ári í tilraunum til þess að styrkja gengi krónunnar. Þrátt fyrir það hefur krónan aldrei verið verðminni.

Guðmundur er ekki hrifinn af þessum aðgerðum. „Þetta dregur að vísu úr gengissiginu, en það er ekki hægt að standa í þessu til lengdar. Annaðhvort verða menn að setja hér upp stalínískt gjaldeyriskerfi þar sem allt er lokað eða skipta um gjaldmiðil. Það er eina vitið að skipta um gjaldmiðil,“ segir Guðmundur.

Þegar hann er beðinn um að leggja mat á árangurinn af þessum aðgerðum segir Guðmundur: „Það er búið að sólunda þessum peningum í vitleysu, þeim væri betur varið í Icesave-reikninginn,“ segir hann.
Er þetta þá glatað fé? „Að öllum líkindum, ég hef ekki trú á því að gengið hækki neitt að ráði. Það gæti komið eitthvað til baka ef gengið hækkar um 5 prósent, en ég held að gengi krónunnar sé þar sem það á vera núna.“


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.