Tárvotir hvarmar fylltu hvert sæti á heimavelli Hanover 96 í dag við minningathöfn Roberts Enke. AFP
Tug þúsund manns heiðruðu minningu þýska landsliðsmarkvarðarins Roberts Enke, sem svipti sig lífi í síðustu viku, á heimavelli Hanover 96 í dag. Minningarathöfn fór fram í dag þar sem stuðningsmenn, aðdáendur og fyrirmenni þýskrar knattspyrnu voru öll samankomin til að heiðra minningu fallins félaga.
Félagar Enke í þýska landsliðinu lögðu blómsveig að kistu hans og eiginkona hans Teresa var hyllt með standandi lófaklappi þegar hún gekk upp að kistunni sem komið hafði verið fyrir á miðjum vellinum.
Enke svipti sig lífi á þriðjudaginn var eftir langa baráttu við þunglyndi.
Reiknað var með að hann yrði markvörður númer eitt hjá þýska landsliðinu á HM í Suður Afríku á næsta ári en þjóðarsorg hefur ríkt í Þýskalandi síðan fregnir af sviplegu fráfalli Enke bárust.
Enke verður lagður til grafar við hlið dóttur sinnar sem lést árið 2006 af hjartagalla.
Myndband af athöfninni má sjá hér að neðan





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung