ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Segir tvö þúsund manns vilja kaupa Haga

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:43 › 15. nóvember 2009
Guðmundur Franklín Jónsson fer fyrir hópi sem vill kaupa Haga.

Guðmundur Franklín Jónsson fer fyrir hópi sem vill kaupa Haga.

Guðmundur Franklín Jónsson athafnamaður, segist vera kominn með yfir tvö þúsund manns á bakvið sig sem hafa lýst yfir áhuga á að kaupa verslunarfyrirtækið Haga. Guðmundur sagði í Silfri Egils í dag að þetta fólk væri tilbúið að leggja fram pening og kaupa hlutafé í Högum. Hann segist telja að Hagar séu góður fjárfestingakostur og segist ósammála því hvernig Kaupþing hefur komið fram í málefnum Haga.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum eru viðræður á milli eigenda Haga og Kaupþings í gangi og hefur Kaupþing þegar tekið yfir meirihluta í stjórn félagsins. Gömlu eigendurnir munu þó hafa fengið frest til þess að koma með nýtt hlutafé inn í félagið.

Guðmundur stofnaði vefsíðuna þjóðarhagur.is og þar hefur fjöldi fólks skráð sig að sögn hans. Guðmundur sagði í Silfrinu að hann teldi að með þessu væri hægt að koma hlutabréfamarkaðnum hér á landi í gang, en Hagar væri að hans mati allt of stórt fyrirtæki með allt of margar verslanir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.