ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Rændu sendiferðabíl með ljóni sofandi aftur í

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:45 › 15. nóvember 2009
Ljónið slapp án meiðsla, en þjófarnir eru ófundnir.

Ljónið slapp án meiðsla, en þjófarnir eru ófundnir.

Bíræfnir þjófar í borginni Wuppertal í Þýskalandi brutust inn í sendiferðabíl sem er í eigu þýsks sirkúss og óku á brott á honum. Þjófarnir voru hins vegar grunlausir um að stærðarinnar ljón var sofandi í bílnum. Þjófarnir flúðu sendiferðabifreiðina eftir að hafa keyrt utan í umferðarskilti skammt frá staðnum þar sem bílnum var rænt.

Ekki er vitað hvort þjófarnir hafi orðið varir við ljónið og misst stjórn á bílnum við það, en lögreglumenn sem komu að hinum mannlausa bíl voru að minsta kosti grunlausir um að ljón væri innanborðs.

Ljónið sem heitir Sesar, var hins vegar rólegt aftur í bílnum og óslasað þrátt fyrir áreksturinn. Laurens Thoen, talsmaður sirkúsins, sagði við þýska fjölmiðla að bílinn sé ómerktur og því ætti engan að gruna að lifandi ljón geti verið um borð.

Sesar hefur það gott að sögn talsmannsins og mun taka þátt í næstu sýningum sirkúsins, eins og ekkert hafi í skorist.

Þjófarnir eru hins vegar ófundnir og geta talist ljónheppnir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.