ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Putin reynir að ná til unga fólksins

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:13 › 15. nóvember 2009
Eitursvalur forsætisráðherra.

Eitursvalur forsætisráðherra.

Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, gerir nú hvað hann getur til að bjarga fylgistölum sínum sem féllu umtalsvert í síðasta mánuði. Og hann lætur sér ekki muna um að reyna að ná til ungafólksins eins og sást þegar hann mætti á rússnesku tónlistarstöðina Muz TV á föstudaginn og blandaði geði við rappara.

Putin er engu að síður lang vinsælasti stjórnmálamaður Rússlands en fjaðrafok varð í herbúðum forsætisráðherrans þegar nýjar fylgistölur voru birtar í síðasta mánuði. Fylgi hans féll um 6 prósent og hefur það aldrei fallið jafn ört síðan hann lét af embætti forseta landsins árið 2008.

Putin mætti í rúllukragapeysu og jakka á svið Muz TV þar sem hann afhenti verðlaun í hip-hop keppninni Battle for Respect á stöðinni.

Og Putin sló í gegn meðal 100 rappara sem samankomnir voru fyrir verðlaunaafhendinguna, sem öskruðu í einum kór „virðing herra Vladimir“ eftir að hann hafði lokið máli sínu.

Talsmaður Putins neitaði því þó að tengsl væru á milli fallandi vinsælda forsætisráðherrans og þeirrar staðreyndar að hann er fullbókaður í fjölmörgum fjölmiðlum næstu vikurnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.