„Ég er búinn að fá fjölmargar áskoranir, þær voru það margar að það var ekki hægt að líta fram hjá þeim,“ segir Einar Skúlason, frambjóðandi Framsóknarflokksins í Reykjavík. Það stefnir í slag um oddvitasætið í Reykjavík eftir að Einar ákvað að fara fram gegn Óskari Bergssyni, sitjandi oddvita flokksins.
„Það hófst ferli á flokksþinginu í janúar þar sem þúsund manns gerðu ákveðnar breytingar á flokknum. Það eimir enn af þessum kröfum um breytingar. Ég kom sjálfur aftur inn í flokkinn í tengslum við flokksþingið, var í framboði í vor og er varaþingmaður. Ég er hluti af þessu breytingaferli,“ segir Einar.
Aðspurður hver sé munurinn á sér og Óskari, svarar Einar: „Ég skal ekki tala fyrir Óskar, en ég hef alltaf verið frjálslyndur framsóknarmaður. Ég legg áherslu á fólkið í borginni og þá sérstaklega á börn og unglinga. Það þarf að passa upp á að viðkvæmustu hóparnir þurfi ekki að bera þyngstu byrðarnar. Ég hef lagt mikla áherslu á nýsköpun, að borgin komi að því ekki síður en aðrir opinberir aðilar með því að styðja við ákveðna umgjörð.“
Nú er það algengur frasi meðal stjórnmálamanna að segjast hafa fengið fjölmargar áskoranir að fara í framboð. Hvernig var það í tilfelli Einars? „Fólk fór að hafa samband við mig og ég ákvað að skoða þetta nánar. Þetta er stórt skref fyrir mig, ég sagði starfi mínu lausu sem skrifstofustjóri þingflokks framsóknarmanna, þannig að það er mikið í húfi fyrir mig, ég legg allt undir.“
Einar bendir á að samkomulag sé í gildi um að frambjóðendur kaupi engar auglýsingar, heldur verði sameiginlegt dreifirit félagsmanna notað. „Það eru þrjú þúsund félagsmenn í Reykjavík og maður reynir að tala við sem flesta.“
Hann segist leggja áherslu á gagnsæi í ákvörðunartöku og heiðarleg vinnubrögð. „En ég er ekkert sérstaklega að tala um Óskar í því samhengi. Mér finnst mikilvægt að fá mælingu á oddvita framsóknarmanna í Reykjavík, það er styrkur fyrir þann sem ber sigur úr býtum.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna