Öryggisvörðurinn Tony Musulin er einn eftirlýstasti maður Frakklands þessa dagana eftir að hafa framið stórfellt rán í síðustu viku þar sem hann komst á brott með rúmlega 2,1 milljarð króna. Hann virðist hafa skipulagt ránið lengi og ítarlega. Lögreglan hefur endurheimt hluta peninganna en Musulin er hylltur sem hetja í heimalandinu. Hann er talinn hafa flúið land með umtalsverða fjárhæð í rassvasanum.
Flekklaus ferill öryggisvarðar
Í tíu ár starfaði Tony Musulin hjá öryggisfyrirtækinu Loomis í Frakklandi. Vörðurinn, sem er 39 ára, státaði af flekklausum ferli og þótti lifa fremur tilbreytingalausu lífi. En það breyttist allt saman á fimmtudagsmorgun þegar hann lét til skarar skríða og ók brynvörðum bíl til að sækja peninga í útibú Banque de France í Lyon.
Musulin, ásamt tveimur kollegum sínum, sótti 11,6 milljónir evra, eða rúmlega 2,1 milljarð króna, í útibúið og lá leið þeirra því næst í annan banka þar sem sækja átti meiri pening. Musulin varð eftir í bílnum á meðan aðstoðarmenn hans tveir sóttu peningana í það útibú. Þegar þeir sneru aftur nokkrum mínútum síðar, sást hvorki tangur né tetur af Musulin, brynvarða bílnum eða milljörðunum.
Reyndist gerandi en ekki fórnarlamb
Þremur klukkustundum síðar fannst bíllinn yfirgefinn og fyrstu fregnir af málinu voru þær að Musulin og peningunum hefði verið rænt af harðsvíruðum bankaræningjum. Á föstudagsmorgun hafði lögreglan komist að annarri niðurstöðu. Lögregluna grunaði nefnilega að Musulin væri ekki gísl einhverra ræningjahrotta, heldur þvert á móti væri hann einhvers staðar í felum með 49 pakkningar af seðlum, brosandi út að eyrum.
Vel skipulagt og úthugsað
Talið er að Musulin hafi unnið einn að ráninu og valið sér stund og stað vandlega. Hann valdi daginn þar sem hann var yfirmaður á vakt yfir hinum tveimur. Valdi sér dag þar sem peningarnir sem sækja átti voru allir spánýir þannig að bankinn gæti ekki rakið þá. Auk þess sem hann hreinsaði út af sínum eigin bankareikningum og fjarlægði öll sönnunargögn úr látlausri íbúð sinni.
Skrítinn einfari
Kollegar Musulins hafa síðan þá lýst honum sem einkennilegum einfara sem varði frístundum sínum í ræktinni og í að kvarta undan stöðu sinni í lífinu. „Honum fannst ósanngjarnt hversu illa launaðir við erum,“ er haft eftir kollega hans í frönsku útvarpi. „Hann sagði um daginn að þeir myndu fá þetta í hausinn. Bankinn og stjórnendur hans.“
Keypti sér sportbíl í apríl
Við rannsókn á málinu vakti það enn frekar áhuga lögreglu þegar í ljós kom að Musulin virðist hafa keypt sér Ferrari-sportbíl í apríl síðastliðnum. Vöknuðu spurningar um hvernig öryggisvörður með tvö þúsund evrur í laun á mánuði hefði efni á að kaupa sér 160 þúsund evra sportbíl. Þá virðist hann hafa tæmt bankareikning sinn í lok október og lögregluna þyrstir einnig í að komast að því hvernig hann náði að safna sér 100 þúsund evrum á þann reikning. Væntanlega liggur hann undir grun um að hafa dregið sér fé við störf sín.
Andhetja fædd
Gjörðir Musulins virðast hafa snert einhverja byltingartaug í löndum hans því hann er hylltur sem sönn hetja af þúsundum manna á netinu. Þúsundir höfðu skráð sig í aðdáendaklúbb hans á Facebook og þá hefur verið stofnuð vefsíða þar sem bolir með andlitsmynd af honum eru seldir undir slagorðinu Besti bílstjóri 2009, og með tilvísun í bíómyndina Scarface, „The World Is Yours“, eða Veröldin er þín.
Almenningur í Frakklandi spyr sig hver munurinn sé á glæp Musulins og þeim „glæpum“ sem bankastjórnendur um allan heim hafa gerst sekir um við hrun efnahagslífsins.
Í gær fann lögreglan í Lyon meirihluta þýfisins í bílskúr þar í borg. Þar reyndist 9,1 milljón evra vera falin, en talið er að Musulin hafi flúið með afganginn, um 2,5 milljónir evra, og ævisparnaðinn til einhvers Balkanlandanna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 


Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu