ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Mannræninginn segist breyttur maður

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:05 › 15. nóvember 2009
Phillip Garrido segist vera breyttur maður.

Phillip Garrido segist vera breyttur maður.

Phillip Garrido, sem rændi Jaycee Dugard og hélt henni á heimili sínu í mörg ár þar sem hún ól honum börn, segist vera breyttur maður. Garrido sendi fjölmiðlum bréf um helgina, þar sem hann sagðist vilja biðja allt mankynið afsökunnar á því sem hann gerði. „Í gegnum anda Jesú Krists, hef ég læknast af kynlífsbrenglun minni,“ segir í bréfi Garrido.

Lögmaður hans tekur undir með Garrido og segir hann breyttan mann. „Umbjóðandi minn er miður sín.“ Fjölmiðlar vestanhafs fengu álit lagaprófessors á bréfi Garrido. „Þetta er hálfgerð afsökunarbeiðni en það er greinilegt að hann tekur ekki fulla ábyrgð á gjörðum sínum,“ segir í umsögninni um bréfið.

Garrido hefur verið iðinn við að senda fjölmiðlum bréf úr fangelsinu, hann hefur áður haldið því fram að lögreglan hefði skert málfrelsi Jaycee Dugard, enda hefur hún lítið sem ekkert tjáð sig síðan hún losnaði úr prísundinni fyrr í sumar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.