ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Lögreglumaður segir af sér eftir kynlífsskandal

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:19 › 15. nóvember 2009

Tveir lögreglumenn frá Glendale í Bandaríkjunum hafa sagt upp störfum eftir að upp komst að annar þeirra hafði sofið hjá samstarfskonu sinni þegar hann átti að vera á vakt, en hinn gerðist sekur um að eiga við tímakortið sitt og senda kollegum sínum skilaboð sem voru bæði kynferðisleg og hlaðin kynþáttahatri.

Lögreglumaðurinn Adam Fisher hefur verið ákærður fyrir að sofa hjá Shannon Godina sem starfar í skýrsludeild lögreglunnar í Glendale. Fisher og Godina eru sökuð um að hafa hist allt að fimm sinnum á heimili hennar á síðasta ári, þegar Fisher átti að standa vakt laga og reglu í borginni.

Godina var rekin fyrir athæfið.

Málið hefur verið til rannsóknar undanfarið ár en við rannsókn málsins komst upp um annan lögreglumann sem stundað hafði, ásamt Fisher, að hagræða tímaskýrslum sínum í vinnunni, og senda skilaboð til kollega sinna á lögreglustöðinni sem þótti bæði klámfengin og uppfull af kynþáttahatri. Báðir sögðu þeir þeir upp störfum eftir að þeir fengu skilaboð frá lögreglustjóranum að til stæði að reka þá.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.