Lögreglan í Indianapolis í Bandaríkjunum leitar nú að tveimur innbrotsþjófum sem brutust inn á heimili þar í borg á föstudagsmorgun. Þrátt fyrir að hafa bundið meðlimi fjölskyldunnar með þykku límbandi á meðan þeir rændu heimilið gáfu þeir sér samt tíma til að hugga grátandi ungabarn á heimilinu.
Lögreglan segir að mennirnir hafi bankað upp á á heimili fjölskydunnar klukkan hálf níu á föstudagsmorgun og beðið um startkapla fyrir bílinn sinn þar sem hann hefði orðið rafmagnslaus. Þeir fóru en komu síðar aftur, bönkuðu upp á og einn mannanna dró upp haglabyssu og ruddist inn á heimilið.
Mennirnir bundu tvo fullorðna og einn ungling á heimili á meðan þeir létu greipar sópa.
Á meðan á því stóð byrjaði yngsta barnið á heimili að gráta.
Ronnie Griffie, eitt fórnarlambanna, spurði ræningjana hvort mögulegt væri að þeir losuðu elsta son sinn svo hann gæti gefið ungabarninu að borða. Ræningjarnir urðu við þeirri bón og gott betur því ekki aðeins leyfðu þeir unglingspiltinum að gefa barninu að borða heldur hituðu þeir persónulega pelann fyrir hann.
Mennirnir komust undan eftir að hafa haft með sér verðmæti á heimilinu en allir heimilismenn sluppu ómeiddir nema einn sem var rotaður.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung