Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Innbrotsþjófar létu greipar sópa í sumarbústað á Grímsnesi fyrir helgi. Innbrot í bústaði hafa verið tíð undanfarið. Mynd: Photos.com
Tilkynnt var um innbrot í sumarbústað á Grímsnesi til lögreglunnar á Selfossi á föstudaginn var. Að sögn varðstjóra lögreglu náðu innbrotsþjófarnir að hafa á brott með sér sjónvarp og önnur verðmæti en innbrot í sumarbústaði hafa verið ansi tíð í umdæmi lögreglunnar á Selfossi undanfarnar vikur og mánuði.
Aðfaranótt sunnudags voru tveir ökumenn teknir vegna gruns um ölvunarakstur. Einn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða eftir að hafa verið látinn blása, hinn reyndist undir leyfilegum mörkum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna