Ásta Kristjánsdóttir sem nýverið hefur náð frábærum árangri með fatalínu sína E-Label hjá Topshop hefur reynt ýmisslegt. Hún stofnaði Eskimo aðeins 25 ára gömul og sem barn axlaði hún mikla ábyrgð þegar móðir hennar fékk heilaæxli.
Ellefu ára var Ásta send í kommúnistabúðir til Austur-Þýskalands þar sem hún grét sig í svefn. Faðir Ástu var einn af forsvarsmönnum kommúnistaflokksins hér á landi í gamla daga og fór hún oft í kröfugöngur með mömmu sinni og pabba.
„Þau voru gallharðir kommar. Og svo þegar ég var ellefu ára sendi mamma mig í kommúnistabúðir fyrir krakka til að vera alveg viss um að ég yrði vinstrisinnuð,“ segir Ásta í viðtali við Nýtt Líf. Hún segir það hafa verið erfitt að vera fjarri fjölskyldunni.
Erfiðast fannst henni að þurfta að gista ein hjá þýskri fjölskyldu í nokkra daga en þá grét hún sig í svefn. En lífsreynslan var ekki alslæm eins og Ásta rifjar hana upp í Nýju Lífi. „Ég var þarna í fimm eða sex vikur, minnir mig. Það var afskaplega fallegt þarna, einskonar lítill bær fullur af krökkum alls staðar að úr heiminum. Við hlustuðum á fyrirlestra, lékum okkur og syntum í vatni sem var á svæðinu, þetta var alveg magnað. Tólf til tuttugu krakkar frá hverju landi sem komu saman og mikið prógramm á hverjum degi þar sem talað var um pólitísk mál og hvernig við gætum gert heiminn að betri stað, Ronald Reagan var ekki mjög vinsæll þarna get ég sagt þér,“ segir Ásta glettin og bætir við:
„Við vorum alltaf með rauða klúta og auðvitað var verið að reyna að heilaþvo okkur ung til að við gætum svo farið aftur heim til okkar landa og miðlað aftur boðskapnum, reyndar alveg „brilliant“ hugmynd. Ásta hlær að reynslu sinni og segir að þetta sé nú hálfsúrrealískt.
Ásta hefur farið um allan heim. Fimmtán ára fór hún til Frakklands þar sem hún gisti í einn mánuð hjá ókunnri fjölskyldu. Sextán ára fór hún til London sem au pair. Átján ára hætti Ásta í menntaskóla og fór til Japans til að starfa sem módel. Tuttugu og fimm ára stofnaði hún Eskimo Models. Í dag er Ásta þrjátíu og sjö ára og komin með sína eigin línu, undir merkjum E-Label, inn í Topshop á Oxfordstræti í London.
Ítarlegt viðtal við Ástu er að finna í nýjasta tölublaði Nýs Lífs





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna