ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Furðuleg heimsmet falla í gríð og erg

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:27 › 15. nóvember 2009
228 manns komu saman í Sydney í Ástralíu í vikunni sem leið til að setja nýtt heimsmet. Það gekk ekki.

228 manns komu saman í Sydney í Ástralíu í vikunni sem leið til að setja nýtt heimsmet. Það gekk ekki.

Undanfarið hafa ýmis ný furðuleg heimsmet verið sett og bætt víðs vegar um heiminn. Heimsmetabók Guinness hefur vart við að fylgjast með furðulegum uppátækjum vongóðra tilvonandi methafa en metin sem sett hafa verið eru allt frá því að draga strætisvagn með hárinu yfir í að baka stærsta piparkökukall í heimi.

Eins og greint var frá á DV.is á dögunum setti Manjit Singh nýtt met á fimmtudaginn þegar hann dró tveggja hæða strætisvagn rúma 20 metra á hárinu einu saman.

En hann er ekki sá eini sem komist hefur, eða reynt hefur að komast, í Heimsmetabók Guinness undanfarið.

Í London settu 112 manns heimsmet á háannatíma í stórborginni fyrir stærsta hópfaðmlag veraldar í eina mínútu.

Á ítalíu var settur nýr besti tími í að borða skál af pasta, tíminn var ein mínúta og þrjátíu sekúndur, þannig að skálin hefur væntanlega verið stór.

Í Noregi var bakaður stærsti piparkökukarl veraldar en sá vegur hvorki meira né minna en 651 kíló. Í Finnlandi var fólki frá 76 löndum troðið inn í einn gufuklefa.

228 manns á sundfötunum einum klæða var þó ekki nóg til að setja nýtt heimsmet í stærstu bikinískrúðgöngu veraldar í síðustu viku. Guinness viðurkenndi ekki það met sem reynt var að setja í Sydney í Ástralíu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.