ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Fótbrotnaði í steypuhrærivél

19:50 › 15. nóvember 2009
Vinnuslys á Bolungarvík. Karlmaður endaði í steypuhrærivél og hlaut opin beinbrot á báðum fótum.

Vinnuslys á Bolungarvík. Karlmaður endaði í steypuhrærivél og hlaut opin beinbrot á báðum fótum.

Alvarlegt vinnuslys varð í Bolungarvík á laugardaginn þegar karlmaður, sem var við vinnu á steypustöð, endaði einhvernvegin í steypuhrærivél á vinnustað sínum með þeim afleiðingum að hann hlaut opin beinbrot á báðum fótum að sögn varðstjóra lögreglunnar á Vestfjörðum.

Að sögn varðstjóra var maðurinn fluttur til Reykjavíkur með sjúkraflugi en málið hefur verið tekið til rannsóknar hjá lögregluembættinu og Vinnueftirlitinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.