„Mál séra Gunnars er fyrsta málið sem fer alla leið í gegnum ferli sem kirkjan kom sér upp. Biskupsmálið svokallaða er sennilega erfiðasta og versta mál sem þjóðkirkjan hefur þurft að glíma við áratugum saman. Það sem mörgum sveið sárt þá var að það var ekkert ferli til, kirkjan var úrræðalaus og ekki gert ráð fyrir þessu,“ segir Davíð Þór Jónsson guðfræðingur í viðtali við helgarblað DV, þar sem farið er yfir mörg af erfið mál þar sem kirkjan hefur verið í skotlínunni.
„Þess vegna var komið upp fagráði þjóðkirkjunnar um kynferðisbrot. Í því situr bara fagfólk á sínum faglegu forsendum. Sömuleiðis var komið upp úrskurðarnefnd sem starfar samkvæmt lögum frá Alþingi,“ segir Davíð Þór
Davíð Þór segir stöðu biskups sterkari eftir Gunnarsmálið. „Ég held að biskup hafi vaxið í Gunnarsmálinu vegna þess að hann leysti það mál og leysti það með hægð og af rósemd. Hann leysti það ekki með fjölmiðlastríði. Hann var sem klettur. Honum var ekki haggað. Hann kvað upp úrskurð og málið er dautt. Karl biskup er þannig að hann verður seint umdeildur. Það fer í taugarnar á frjálslyndustu guðfræðingunum hvað hann er íhaldssamur og það fer í taugarnar á íhaldssömustu guðfræðingunum hvað hann er frjálslyndur.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 


„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna