Gordon Brown. Búist er við að hann biðji fórnarlömb útflutningsstefnu breskra stjórnvalda í seinni heimsstyrjöldinni afsökunar.
Búist er við að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, biðjist opinberlega afsökunar á meðferðinni á tíu þúsund munaðarlausum börnum sem send voru til Ástralíu frá Bretlandi eftir seinni heimsstyrjöldina. Þar sættu börnin misnotkun. Kollegi hans í Ástralíu, Kevin Rudd, bað þolendur afsökunar á mánudaginn var.
Bretar ákváðu á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar að senda allt að tíu þúsund ungmenni til Ástralíu. Ágóðinn fyrir breska ríkið var sá að það var tíu sinnum ódýrara að halda börnunum uppi í munaðarleysingjaheimilum í Ástralíu en í Bretlandi.
Sky-fréttastofan hefur eftir einum manni sem lenti í því að vera sendur hinu megin á hnöttinn á þessum tíma, John Hennessy, að logið hafi verið að börnunum svo þau færu án múðurs.
„Þeir sögðu að kengúrur myndu ferja okkur í skólann, Ástralía væri land mjólkur og hunangs, gnægð af ávöxtum allstaðar, og sem saklaus börn trúðum við þessu.“
Beitt ofbeldi og misnotuð kynferðislega
Ekkert af þessu varð þó raunin eins og gefur að skilja. Í staðinn voru fjölmörg börn beitt ofbeldi og notuð sem litlir þrælar. Hennessy segir að hann þjáist enn af stama sem hann þróaði með sér eftir að hafa verið barinn sem barn í Ástralíu.
Fjöldi barna voru kynferðislega misnotuð af barnaníðingum sem unnu á munaðarleysingjaheimilum og öðrum stofnunum sem tóku við þeim í Ástralíu.
Sky-fréttastofan hefur eftir Hennessy og öðrum manni sem sætti sömu meðferð eftir útflutninginn að þeir hafi tekið afsökunarbeiðni ástralskra yfirvalda góða og gilda þegar hún barst á mánudaginn var. Þeir eru samt reiðir yfir því að bresk yfirvöld hafi ekki enn gert slíkt hið sama.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung