ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Alræmdur raðnauðgari handtekinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:20 › 15. nóvember 2009
Lögreglan í Bretlandi komin á slóð raðnauðgara sem herjar á eldriborgara.

Lögreglan í Bretlandi komin á slóð raðnauðgara sem herjar á eldriborgara. Mynd tengist efni fréttar ekki beint

Lögreglan í Lundúnum hefur handtekið mann sem talinn er tengjast rannsókn lögregluyfirvalda í Bretlandi á máli raðnauðgara sem grunaður er um tugi kynferðisglæpa og yfir hundrað innbrot þar í landi. Maðurinn hefur herjað á eldri borgara frá því á tíunda áratug síðustu aldar og er einn eftirsóttasti glæpamaður Bretlands.

Fórnarlömb mannsins voru bæði konur og karlar á aldrinum 68-93 ára.

Talsmaður lögreglunar í Lundúnum segja að 52 ára karlmaður sé í gæsluvarðhaldi og herma heimildir Sky-fréttastofunnar að hann verði ákærður síðar í kvöld.

Hann var handtekinn snemma á laugardagsmorguninn í skipulögðum aðgerðum lögreglunnar
Lögreglan hefur undanfarin tólf ár safnað tvö þúsund DNA-sýnum í tengslum við málið sem kostað hefur lögregluna rúmlega 20 milljónir króna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.