ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Pálmi í Fons: Arðurinn greiddur fyrir Stím-málið

14:20 › 14. nóvember 2009
Pálmi segir ekki rétt að arðgreiðslurnar úr Fons hafi átt sér stað í skugga Stím-málsins.

Pálmi segir ekki rétt að arðgreiðslurnar úr Fons hafi átt sér stað í skugga Stím-málsins.

Pálmi Haraldsson, kenndur við Fons, segir að arðurinn sem eigendur Fons greiddu sér árið 2007 hafi verið vegna rekstrarársins 2006 og því sé ekki réttmætt að segja að arðgreiðslurnar hafi verið í skugga Stím-málsins svokallaða. Í frétt á DV.is í gær var greint frá því að eigendur Fons, Pálmi og Jóhannes Kristinsson, hefðu greitt sér 4,4 milljarða í arð vegna rekstrarársins 2007, á sama ári og Stím-málið kom upp, þar sem Fons hafi fengið 2,5 milljarða króna að láni frá Glitni sem síðar runnu til dótturfélags þeirra, FS37, sem síðar var endurskírt Stím.

Fons lánaði dótturfélagi sínu, FS38 ehf., 2,5 milljarðana og svo lánaði það félag þessa milljarða til annars dótturfélags Fons, FS37 ehf. Í samkomulagi Glitnis og eiganda Fons og FS38 var söluréttarákvæði sem gerði Fons kleift að henda FS38 aftur í bankann ef þeir kærðu sig um það. Lánið frá Glitni var því tekið án allrar áhættu af þeirra hálfu og nýttu eigendurnir sér söluréttinn á félaginu eftir bankahrunið í haust. Tapið vegna lánsins frá Glitni lendir því á Glitni vegna þessa söluréttarákvæðis og eigendur félagsins losna við það án allra eftirmála.

Mistök DV.is í fréttinni í gær voru þau að líta svo á að arðgreiðslurnar í Fons hafi verið veittar árið 2008 fyrir árið 2007, það er að segja eftir að Stím-málið átti sér stað í nóvember 2007 og eftir að Fons var búið að taka 2,5 milljarða lán, sem var án allrar áhættu, hjá Glitni. Hið rétta er að arðgreiðslurnar úr Fons áttu sér stað nokkrum mánuðum áður en Stím-málið kom upp og þar með áður en Fons fékk lánið frá Glitni sem rann í gegnum FS38 og inn í FS37, síðar Stím.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.