ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Stím-málið: Glitnir lánaði Fons 2,5 milljarða án veða

12:38 › 13. nóvember 2009
Lykilmaður í Stím-málinu.

Lykilmaður í Stím-málinu.

  • Jón Ásgeir Jóhannesson var stjórnarformaður FL Group, stærsta hluthafa Glitnis, þegar Stím-málið átti sér stað.

    Jón Ásgeir Jóhannesson var stjórnarformaður FL Group, stærsta hluthafa Glitnis, þegar Stím-málið átti sér stað.

Heimildarmaður DV innan úr bankakerfinu segir að eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar, Fons, hafi fengið 2,5 milljarða að láni frá Glitni án veða sem síðan hafi farið í gegnum eitt dótturfélag Fons og yfir í annað dótturfélag sem síðar var endurskírt Stím. Hann segir að söluréttur hafi verið á FS38 og að Fons hafi nýtt sér hann eftir bankahrunið í fyrra og hent félaginu aftur til Glitnis. Stím-málið fer mjög bráðlega frá Fjármálaeftirlitinu og til sérstaks saksóknara þar sem grunur leikur á að það sé dæmi um markaðsmisnotkun.

Samkvæmt heimildum DV var samkrull Fons og Glitnis þannig að eigendur Fons gátu losað sig við félagið FS38 aftur til Glitnis ef eigandi þess, Pálmi Haraldsson, kærði sig um það. „Það var gengið þannig frá því að það var söluréttur á félaginu [Innskot blaðamanns: FS38]. Hann var hluti af þeim gagnkvæmu réttindum sem voru á milli Fons og bankans. Í honum fólst að Fons gat hent félaginu í Glitni aftur. Þessi söluréttur var nýttur á sínum tíma. Þannig að félagið tilheyrir ekki lengur Fons,“ segir heimildarmaður DV innan úr bankakerfinu en hann segir að Fons hafi nýtt sér þennan sölurétt eftir bankahrunið í haust.

2,5 milljarða lánveitingin frá Fons til FS38 er því inni í félagi sem ekki tilheyrir Fons lengur heldur búi gamla Glitnis. Þannig gátu eigendur Fons losað sig undan allri ábyrgð á félaginu og skuldbundingum þess og varpað þeim yfir á Glitni. Skilanefnd Glitnis ræður því nú yfir FS38.

Heimildir DV herma jafnframt að lánveitingin upp á 2,5 milljarða sem rann frá Fons til FS38 og þaðan til FS37, síðar Stím, hafi verið komin frá Glitni. Þetta lán frá Fons til Glitnis var veitt án allra ábyrgða eða veða. Af þessum ástæðum tapaði Fons því engu á því að taka lánið eða veita því áfram til FS38 þar sem engin veð voru nokkru sinni fyrir hendi. Því má segja að þeir einu sem hafi tapað á lánveitingunni hafi verið hluthafar Glitnis, sem var almenningshlutafélag á þeim tíma.
Keðjan var því sú að banki sem var í óbeinni eigu Fons í gegnum FL Group lánaði félagi í eigu Fons, FS38, 2,5 milljarða króna. FS38 lánaði síðan öðru félagi í eigu Fons, FS37, sömu upphæð. FS37 keypti þá hlutabréf í FL Group og Glitni, félögum sem voru í beinni og óbeinni eigu Fons, með umræddri lánveitingu og frekara láni frá Glitni upp á tæpa 20 milljarða króna. „Þetta lán bara gengur niður eftir keðjunni, úr einum vasa í annan í gegnum milliliði. Frá Glitni, í gegnum Fons og svo koll af kolli og endar með því að vera notað til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group,“ segir heimildarmaður DV en seljandi Stím-bréfanna var, líkt og áður hefur komið fram, Glitnir sjálfur.

Þessi flétta Fons og Glitnis, sem lagði grunn að hlutabréfakaupum félagsins sem síðar var kallað Stím í FL Group og Glitni, er afar líklega dæmi um markaðsmisnotkun af hálfu stjórnenda og eigenda Glitnis og Fons, samkvæmt heimildarmanni DV. Samkvæmt heimildum blaðsins telja eftirlitsaðilar sem skoðað hafa þessi viðskipti Fons og Glitnis þar af leiðandi að þau séu refsiverð. „Ég held að þetta sé dæmi um hlutdeild Fons í broti annarra, það er að segja Glitnis í þessu tilfelli. Þetta er líklega þátttaka í markaðsmisnotkun. Það er verið að versla með hlutabréf í banka, hugsanlega á óeðlilegu gengi og hugsanlega þannig að bankinn sé sá eini sem beri einhverja ábyrgð,“ segir heimildarmaður DV.
Rannsókn sérstaks saksóknara mun væntanlega leiða í ljós hvort þessi grunur er á rökum reistur og hvort ákærur verða gefnar út í Stímmálinu. En ljóst er að þessu alræmda máli í aðdraganda efnahagshrunsins er hvergi nærri lokið.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.