ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

LÍU mætti ekki á fund í nefnd sjávar- útvegsráðherra

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
16:24 › 13. nóvember 2009

"Þetta voru ekki samantekin ráð, en því er ekki að leyna að við sjáum engan tilgang í því að mæta á þessa fundi í samráðshópi sjávarútvegsráðherra," segir Adólf Guðmundsson, formaður Landssamband íslenskra útvegsmanna.

Hvorki Adólf né Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ létu sjá sig á fundi í starfshópi sjávarútvegsráðherra um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins í dag. "Þetta eru forkastanleg og óviðunandi vinnubrögð ríkisstjórnarinnar, sjávarútvegsráðherra og stjórnarflokkanna að leggja fram frumvarp í mörgum liðum um endurskoðun fiskveiðistjórnunar sem ekki hefur verið rætt eða kynnt starfshópnum."



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.