Rannsóknin á Stímmálinu beinist meðal annars að aðkomu Pálma Haraldssonar í Fons þar sem hann var eigandi félagsins FS37 sem síðar varð Stím. Félag í eigu Pálma, FS38, lánaði FS37 2,5 milljarða króna. FS38 fékk lánið frá Fons sem aftur fékk lánið frá Glitni.
Eigendur Fons gerðu samning við Glitni sem gerði þeim kleift að henda FS38 aftur í bankann. Stjórnendur Fons og Glitnis eru grunaðir um markaðsmisnotkun í Stímmálinu.
Eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar, Fons, er í lykilhlutverki í rannsókninni á eignarhaldsfélaginu Stím sem nú er í fullum gangi hjá Fjármálaeftirlitinu. Einungis er mjög stutt þar til Fjármálaeftirlitið mun senda rannsóknina á Stímmálinu til sérstaks saksóknara íslenska efnahagshrunsins, Ólafs Haukssonar, samkvæmt heimildum DV. Fons var eigandi eignarhaldsfélagsins FS37, sem stofnað var 23. október 2007, sem endurskírt var Stím tæpum mánuði síðar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna