ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

4 milljarða arðgreiðslur Fons í skugga milljarða Stím-láns

19:47 › 13. nóvember 2009
Pálmi Haraldsson, annar eigandi Fons, greiddi sér 4,4 milljarða í arð á árinu 2007.

Pálmi Haraldsson, annar eigandi Fons, greiddi sér 4,4 milljarða í arð á árinu 2007.

Eigendur eignarhaldsfélagsins Fons, Pálmi Haraldsson og Jóhannes Kristjánsson greiddu sér 4,4 milljarða í arð á árinu 2007. Á því ári tók félagið líka lán frá Glitni upp á 2,5 milljarða sem endaði í eignarhaldsfélaginu Stím eftir að hafa haft viðkomu í dótturfélagi Fons, FS38. Lánið var notað til að fjármagna hlutabréfakaup Stíms í Glitni og FL-Group fyrir tæpa 25 milljarða króna sem var fjármagnað með láni frá Glitni að langmestu leyti. Greint er frá málinu í helgarblaði DV.

Fons komst að samkomulagi við Glitni um að félagið hefði sölurétt á FS38 og gæti því selt bankanum það ef svo bæri undir. Áhætta Fons af Glitnisláninu var því engin og gat félagið rennt láninu í gegnum FS38 og þaðan inn í FS37, sem síðar var endurskírt Stím. Eftir því sem DV kemst næst nýtti Fons sér þennan sölurétt á FS38 eftir efnahagshrunið í haust. Félagið sem tók lánið frá Fons, sem aftur tók lánið frá Glitni, er því í vörslu skilanefndarinnar núna. Fyrrverandi eigendur Fons sleppa við að bera ábyrgð á láninu.

Heimildarmaður DV innan úr bankakerfinu segir að viðskipti eignarhaldsfélagsins Stím líti út eins og markaðsmisnotkun. Málið hefur verið til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu um langt skeið og mun brátt verða sent til sérstaks saksóknara efnahagshrunsins, Ólafs Haukssonar, samkvæmt heimildum DV.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.